Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1953, Síða 80

Eimreiðin - 01.07.1953, Síða 80
232 KYNGLÆPIR eimiíeiðin því að alast upp í „sakleysi vanþekkingarinnar“, en það er ekki hægt að fela fyrir þeim hinar viðbjóðslegu staðreyndir, sem kynferðisafbrotum fylgja. Dagblöðin eru full af ægilegum frá- sögnum um þau, og þau eru rædd af ungum sem gömlum. Enginn skyldi halda, að hægt sé að fela fréttirnar — og hætturnar af kynglæpum fyrir börnunum. Foreldrar og kennarar draga sjálfa sig á tálar með því að halda slíkt. En þó er hræsnin og yfirdreps- skapurinn enn í svo miklum hávegum, að þegar þrjú nauðgunar- morð voru framin í röð nýlega í New York, og raddir heyrðust um, að skynsamleg skólafræðsla í kynferðismálum hefði getað bjargað að minnsta kosti einni stúlknanna, sem myrtar voru, þá risu vandlætararnir upp og kæfðu þessar raddir með ópum sínum og gauragangi. Væri nú ekki betra og réttara að játa hreinskilnislega fyrir börnunum, að kynglæpir gerist — og ræða við þau hvers vegna þeir gerist og hvernig bezt verði varizt þeim? Að sjálfsögðu eru tillögur þær, sem bornar eru fram í þessari grein, aðeins uppkast í stórum dráttum. Það er sem sé enginn hægðarleikur að flytja vandamál sem þetta á opinberum vettvangi og koma með altæka og örugga lausn á því — vandamál, sem um langt skeið hefur verið þaggað niður — eða þá farið með eftir úreltum, eldgömlum lögum, sem sum eru blátt áfram hlægileg. En vér getum öll tekið þetta uppkast til vandlegrar athugunar, reynt að auka það og endurbæta, svo að það nái tilgangi sínum- Fyrsta og ef til vill erfiðasta skrefið í málinu er að horfast hreinskilnislega í augu við staðreyndirnar, án undanbragða og hálfvelgju. Það er ekki nóg að fyllast reiði yfir frömdum glæP — og gera ekkert. Því þegar minnst varir getur hryllilegt böl kynglæpsins snert sjálfan þig persónulega og þitt eigið heimih — og þá er of seint fyrir þig að hefjast handa. Los Angeles vísar veginn. Síðan árið 1937 hefur borgarstjórnin í Los Angeles haldið uppi ör- uggum og áhrifaríkum vörnum gegn kynglæpum, með því að það ár var sett þar á stofn sérstök kynglæpastofnun, sú fyrsta þeirrar tegund- ar i Bandaríkjunum. Afbrotamennirnir eru rannsakaðir, ljósmyndaðiv, tekin af þeim fingurmót, og þeir látnir ganga undir skoðun hjá dr. J- Paul De River, geðveikralækni. Síðan eru þeir flokkaðir eftir eðli þeirrar úrkynjunar, sem þeir eru haldnir af, eftir glæp þeim, sem þeir hafa framið, og eftir almennu sálarástandi þeirra. Áður en stofnunin var sett á laggirnar var það algengt, að kyn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.