Eimreiðin - 01.07.1953, Qupperneq 82
Árbák FerSafélags IslancLs 1953:
MÝRASÝSLA, eftir Þorstein
Þorsteinsson, sýslumann.
Þorsteinn Þorsteinsson, sýslumaður,
hefur einu sinni áður ritað lýsingu
á héraði fyrir Ferðafélag Islands. Það
var í árbók 1947, og var um Dala-
sýslu. Sú héraðslýsing er ein hin
skipulegasta og gagnorðasta af öllum
þeim mörgu, er út hafa komið á
vegum Ferðafélags Islands, án óþaifa
mælgi og útúrkróka. En þó jafnan
það fram tekið, er máli skiptir mest.
Ekki get ég þó neitað því, að þessi
lýsing Þorsteins af æskustöðvum
hans er skemmtilegri aflestrar en hin,
veldur þar mest frjálslegri og til-
þrifameiri ritháttur, sem oft verður
skáldlegur og mikilúðgur. Báðar eru
bækumar mjög skipulega samdar og
alveg ótrúlega miklu efni komið fyrir
í stuttu máli. En mjög hefur höfundi
yerið sniðinn þröngur stakkur og
hann orðið að þjappa saman miklu
efni í iitla bók. Er furðulegt, hvað
maður veit um þetta hérað eftir lest-
ur bókarinnar. Vil ég til gamans
nefna lítinn kafla á bls. 9 og 10 (alls
26 linur) um bergtegundir. Eftir
lestur þessara fáu lína veit maður
ótrúlega mikið um jarðmyndanir í
héraðinu. Er ég viss um, að mörgum
hefði tekizt að skrifa nokkrar blað-
síður um það efni, en segja þó ekki
meira en hér er gert.
Bókinni er skipt í 12 kafla og
nokkrum þeirra í undirkafla eða
greinar. Alls er lýsingin 99 bls. og
auk þess formáli og eftinnáli. Mynd-
ir eru margar og góðar. I. kaflanum
er skipt i 5 undirkafla, er þar m. a.
getið um landkosti og veðurfar. Þar
er getið ýmissa hlunninda, svo sem
selveiði, dún- og fuglatekju fyrir
Mýrum. í umsögn um bókina sá ég
kvartað um, að þessu væri sleppt (i
Morgunbl. eftir Ragnar Ásgeirsson),
en svo er ekki. Aftur á móti er i
III. kafla, Hlunnindi, eingöngu rætt
um laxveiði og veiðivötn, enda er
Mýrasýsla (og Borgarfjarðar) íræg-
ust allra sýslna landsins fyrir hinar
heimsfrægu laxveiðiár: Þverá, Norð-
urá, Langá o. fl. ár. Virðist því sjálf-
sagt að helga þessari veiði sérstakan
kafla i lýsingunni. Allrækilegur kafli
(XII.) er um hina miklu hella i
Hallmundarhrauni, sem mjög eru
frægir og eiga enga sina líka hér a
landi og fáa i heimi.
Það er ótrúlega mikill fróðleikur,
sem saman er safnað í þessa litlu
bók, bæði landfræðilegur, sögulegui'
og þjóðfræðilegur, og i rauninni stór-
mikið afrek að vinna þetta verk a
svo skipulegan og skemmtilegan hatt
og Þorsteinn Þorsteinsson hefur gei't-
Bókin er hvergi þurr, en ætið fjörugt
og lifandi skrifuð, mjög gætt hófs um
lýsingu fornra, niðurlagðra vega og