Eimreiðin - 01.10.1953, Page 10
246
VALTtR Á GRÆNNI TREYJU
EIMREIÐIN
utan það, sem allir höfðu í huga af blæ þessara tíðinda, er orðið
höfðu á þessum tíma.
Eins og ég fyrr sagði, tímasetti þetta fólk Valtýsveturinn 1754,
og fær það vel staðizt í ársferðislýsingum annálanna. Bar ekki á
milli míns fólks úr Héraði um þetta og þeirra, sem ég í æsku
heyrði minnast á Valtýsvetur í Vopnafirði. Ég heyrði og mitt
fólk minnast á vísur, sem ortar hefðu verið um böðulinn á Völlum,
en hirti ekki um að nema og man ekkert úr nema eina samstöfu:
„Beinárgerðis-Bjarni minn, böðullinn á Völlum“. í manntalinu
1816 finnast Bjarna börn, sem fædd eru í Beinárgerði á Völlum
og sum milli 1760 og 1770, og 1762 býr í hjáleigu frá Eyjólfs-
stöðum á Völlum Bjarni Björnsson. Þessi kveðskapur um böðul-
inn átti að standa í sambandi við aftöku Valtýs á grænni treyju
og þá sennilega hins síðara. Var og höfð skrýtla eftir konu Bjarna,
sem hitt hafði sýslumannsfrúna á Ketilsstöðum, er barmaði sér
yfir því, hversu lengi maðurinn sinn væri í þessum þingaferðum.
„Þetta megum við nú hafa, embættismannakonurnar," sagði kona
Bjarna. Virðist sem svo, að ýmislegt hafi verið geymt um Bjarna,
þótt enginn stafur finnist um Valtý á grænni treyju.
Sagan af Valtý á grænni treyju birtist fyrst í þjóðsagnasafni
Jóns Þorkelssonar, skráð af Magnúsi Bjarnasyni á Hnappavöllum
í Öræfum árið 1882. Getur hann heimildarmanns síns, manns, sem
alizt hafi upp á Völlum í Héraði, og móður hans, og hafi hann
upplýst fyrir sér, að Jón langafi heimildarmanns hafi verið ráðs-
maður Jóns sýslumanns Arnórssonar, er var lögsagnari Hans
Wíum sýslumanns 1769—1778. Komið hefur fram upplýsing um
það, að þessi maður hafi verið Halldór Jakobsson frá Gunnlaugs-
stöðum í Vallahreppi, og móðir hans, Sesselja Þórðardóttir frá
Finnsstöðum í Eiðaþinghá, f. 1800. Vel má það vera, en rétt er
líka að benda á það, að presturinn í Sandfelli í Öræfum var Sig-
björn Sigfússon frá Hofteigi, er hélt þann stað 1860—72, en með
honum dvaldi móðir hans, Ingveldur Jónsdóttir prests í Þingmúla
Hallgrímssonar. Séra Sigbjörn á engan Jón fyrir langafa, en lang-
afi hans einn var Þórður, sonur Árna auðga á Arnheiðarstöðum,
mágur Hans Wíums, og er ekki ólíklega til getið, að hann hafi
verið ráðsmaður Jóns Arnórssonar eða búið fyrir hann, og er
lítt að marka, þó að sagnaritari nefni þennan mann Jón, fyrst
hann nefnir ekki sögumenn sína aðra. Jón sýslumaður kvæntist
eftir Alþingi 1770 og mun ekki hafa búið fyrr í Héraði og þá
sennilega átt heima á Arnheiðarstöðum hjá Þórði Ámasyni.
Magnús á Hnappavöllum hafði því ágætar heimildir að sögu