Eimreiðin - 01.10.1954, Side 23
eimreiðin UM LISTSKÖPUN FYRR OG NÚ . 255
niyndir, sem sýna verur, er taka langt fram mönnum að mætti
og þroska.
Innsæið og andleg spektin eru langmikilvægustu þættirnir í
hverjum listamanni, en ekki eingöngu handfimin og leiknin ein,
eins og svo mörgum er tamt að telja nú á dögum. Handfimi og
leikni gagna ekkert, skorti þessar náðargáfur. Þá verður lista-
verkið ekki annað en tæknilega vel gerð smíð, sem ber lista-
tnanninum loflegt vitni um dugnað, þegar bezt lætur, og sýnir,
að hann sé leikinn í iðn sinni, en verk hans verður eftir sem
áður andlaust og innantómt, og svo er því miður um meginið
af list nútímans. Matisse, hinn mikli meistari vorra tíma, sagði
um listina eitthvað á þessa leið: Listaverk má ekki koma áhorf-
andanum úr jafnvægi, hvorki vekja hjá honum hugsanir né
tilfinningar. Listaverkið á með öðrum orðum að vagga honum
í þægilegan svefn. Það á að fela í sér hugsjón, ef hugsjón skyldi
kalla, sem kemur nákvæmlega heim við móðursýkiskennda
fegurðarþörf strokins heimsmannsins, sem orðinn er ofmettaður
af sjálfsdýrkun og þægindakennd letingjans, sem nennir ekki
einu sinni að hugsa lengur. Þetta er efnishyggja og úrkynjun
á hæsta stigi. Listamenn fornaldar leituðust við að leiða hugi
mannanna til guðs, með list sinni, en einhver frægasti málari
nútímans, Matisse, leiðir þá til doða og nenningarleysis, en
Guernica, hiS kunna ,,abstrakt“málverk eftir Picasso.
annar hinna frægustu, Picasso, til heiskju og haturs. Vér sjá-
um af öllu þessu, að listamaður, sem upphefur sjálfan sig og