Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Síða 34

Eimreiðin - 01.10.1954, Síða 34
266 LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL EIMREIÐIN öllu vamað þess, sem O’Neill kallar sál, enda þykist austræna kóngsdóttirin við og við sjá þessari sál bregða fyrir. En neist- inn er ekki sterkari en svo, að hann kafni ekki til fulls í aurahyggju Marcós, og á löngu, hættulegu ferðalagi kemst hann aldrei svo langt að kyssa kóngsdótturina austrænu, þótt augu hennar freisti hans daglega. f þessum leik er það austræna spekin um lífið, sem sættir O’Neill við tilveruna, þar sem hin vestræna menning í gervi Marcós er steindauð. The Great God Brown (1926), sem í hversdagslífi heitir William Brown, er annar Marcó frá, andlaus amerískur borg- ari, en vel stæður og vel metinn. Andstæða hans í leiknum er Dion Anthony, sem í aðra röndina er Díónysos-satýr- Mefistofeles, en í hina dýrlingurinn St. Anthony. í skapi hans togast djöfullinn og dýrlingurinn á í sífellu, og notar hann grímu til að tákna Mefisto-eðli sitt og tekur hana sjaldan ofan, aldrei í sambúð við konu sína. Eins og O’Neill er Dion viðkvæmur listamaður og hefur aldrei náð sér eftir hrekk, er William Bi'own gerði honum af öfund, er þeir voru strákar báðir. Hjónabandið hjálpar honum ekki, því að konan þolh’ ekki að sjá hann grímulausan. Fyrir utan drykkinn er helzt huggunar að leita hjá hóru, sem táknar móður jörð; bæði hann og The Great God Brown finna huggun hjá henni: hún spekir bæði listamanninn og athafnamanninn við brjóst sín. Leikurinn er of flókinn til þess að fara lengra út í hann, en þess verður að geta, að þegar Dion deyr, tekm' Brown bæði konu hans og grímu, en verður við það tvískiptur og óham- ingjusamur, þar til hann deyr við brjóst jarðar. Enginn leikur O’Neills er jafn-hlaðinn lífsglaðri trú í anda Nietzsches og Lazarus Laughed (1927). Lazarus er Dionysos, og þegar hann rís frá dauðum hefur hann þá sögu að segja, að enginn dauði sé til, allt sé líf og guð sé hlæjandi guð- Sjálfur er hann síhlæjandi og tekur öllum hlutum fagnandi, er bera honum að höndum. Að sjálfsögðu fylgja lærisveinar hans honum hlæjandi í dauðann, og þeir hlæja ekki af hreysti, eins og fornmenn, heldur af gleði með lífið og tilveruna, hvort sem hún birtist þeim sem líf eða dauði. I engum leik er jafnmikið af boðskap Zarathustras, spámanns Nietzsches, en eftir það hætti O’Neill að boða trú Díónýsosar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.