Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 36

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 36
268 LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL EIMREÍÐIW og svífst Nína einskis til að stía ungu hjónaefnunum sundur og myndi hafa tekizt það, ef Darrell hefði ekki hindrað. Um þetta leyti deyr Evans úr slagi, og er Nína þá tilbúin að giftast hinum gamla föðurlega vini sínum, Marsden, svo að þau bæði geti rotnað í friði. Saga þessi gerist í Nýja Englandi, eins og Desire under the Elms, og er fróðlegt að bera þessar tvær fjölskyldur saman. Bændafjölskyldan, sem á að vera frá því um miðja 19. öld, lifir í fullkomnu sam- ræmi við náttúruna, einnig þá mannlegu (svipað og Gunnar gamli í Guð og lukkan eftir Hagalín). Þannig venur unga konan þar bóndasoninn undan móður sinni með því að leggja hann í sæng hjá sér. I þessum leik er aftur á móti um siðað fólk að ræða; því dettur ekki til hugar að fylgja hvötum sínum, þess vegna á það á hættu, að hvatirnar stingi upp kollinum síðar og geri það taugaveiklað og óhamingjusamt. Saga Nínu er ekkert einsdæmi. Hún gæti verið saga hverrar konu sem væri. Leikurinn varð vinsælasti leikur O’Neills á sviði, þrátt fyrir lengdina. Menn fóru að sjá hann klukkan hálf sex, borðuðu í hléi og sátu svo til klukkan ellefu. Að hann var svo langur stafaði af því, að O’Neill lét sér ekki nægja að skrifa, hvað persónurnar sögðu, heldur skráði hann líka, hvað þær hugsuðu í hugrunastíl, eins og skáld- söguhöfundur. Auk Strange Interlude er Mouming Becomes Electra (1931) stærsti og stórfenglegasti leikur O’Neills. I þessum þríleik tvinnar hann saman efnið úr forn-grískum leikjum um sifja- spell og föður- eða móður-morð við sálarfræði eða sálsýkis- fræði Freuds. Electra er systir Orestesar, en þau tvö systkin hefna föður síns, Agamemnons, með því að drepa Klýta- mnestru móður sína og Ægisthos, friðil hennar. Raunar höfðu sálsýkisfræðingarnir sjálfir dregið jafnaðarlínur frá hugmyndum sínum til hinna fornu harmsagna: Þeir höfðu löngum talað um Oidipus-fléttuna (,,komplexið“), er átti að vera sálarástand Oidipusar konungs, er drap föður sinn og kvæntist síðan móður sinni. 1 leik O’Neills svarar Ezra Mannon hershöfðingi til Aga- memnons (nafnlíking af ásettu ráði), Kristín, kona hans, til Klýtamnestru, Adam Brant, bróðursonur Ezra og friðill

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.