Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 39

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 39
eimreiðin LEIKRITASKÁLDIÐ E. O’NEILL 271 (1952). Þeir eru báðir, og einkum hinn fyrri, fullir lífsleiða og örvæntingar. The Iceman Cometh (ísmaðui'inn táknar dauðann) var síðastur leika O’Neills leikinn í New York, en fékk hálfkaldar viðtökur. Ástæðan var ekki sú, að það væri verri leikur eða svartsýnni en Mourning Becomes Electra til dæmis. Hitt var heldur, að eftir stríð hið síðara og verra hafa allir leikir skáldsins þótt úreltir í Vesturheimi, því að hvað áttu kross- farar gegn and-Kristi (fyrst Hitler, svo Stalin) að gera við það að leita eftir tilgangi lífsins? En sú leit lét O’Neill aldrei í friði. Eins og fyrstu leikir O’Neills fjallar þessi leikur um úr- hrök mannfélagsins, drykkjurónana. Hann gerist á hafnar- bakka í New York sumarið 1912 í verstu tegund af knæpu, síðasta afdrepi og hæli róna, sem hafa kastað frá sér allri von um lifanda líf. Einn af fastagestum knæpunnar, fyrr- verandi stjórnleysingi, Larry Slade, orðar það svo: „Þetta er vonlausa knæpan, byggð á undirstöðu, þar sem dýpra verður ekki grafið, kaffihúsið á leiðarenda, ,,Ratskeller“ á sævarbotni. Takið þið ekki eftir fegurð lognsins, sem ríkir hér? Það er af því að þetta er þrautalending, síðasta höfn . . Þrátt fyrir allt halda menn hér uppi eins konar lífi, þótt oftast sé það ekki annað en dagdraumar um daginn í gær eða á morgun. Lognið í knæpunni virðist ætla að breytast í óstöðugt veður, ef ekki storm, er inn kemur Harry Hick- man, áður gleði- og drykkjumaður mikill. Hann boðar félög- unum þann fagnaðarboðskap, að þeir skuli vakna af lifandi svefnförum sínum og ganga út í bert loft lífsins. Slíka loft- lagsbreytingu þola rónarnir þó ekki vel, enda eru þeir innan skamms setztir að sumbli á ný. En knæpan er ekki söm, jafnvel viskýið og svartidauðinn virðast hafa misst kraft: ,,Hvað gerðirðu við þennan svartadauða?" spyr einn gestur- inn, „það er ekkert bragð að honum lengur.“ Það kemur upp úr kafi, að aðferð Hickeys til að sætta sig við lífið og reyna að lifa því á mannsæmandi hátt var sú, að stytta konu sinni aldur, ekki af því að þau hötuðust, heldur af því að hann, drykkjumaðurinn, þóttist aldrei getað lifað svo sem henni hæfði. En þegar lögreglan kemur eftir honum, þá dett-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.