Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 44

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 44
F □ R N I N (INDVERSIÍ SAGA) eftir Nergis Dalal. Bifreiðin rann mjúklega eftir dældóttum veginum. Gljáfægður skrokkur hennar var nú þakinn þykku ryklagi. Leiðin lá með- fram sviðnum ökrum, sem teygðust í skrælnuðum langrákum alla leið upp að f jallsrótum, en yfir f jöllunum hvíldi blá, þunnleit móða, eins og reykur. Herra Trian glápti gráðugum augum út um bílgluggann. Hann var kominn til að sjá Indland og ákveðinn í að láta ekkert fram hjá sér fara ókannað. Hann hafði séð safarík beitilönd, græn- skrýdd hæðadrög og aflíðandi teræktar-sléttur. Hann hafði rann- sakað rústir, hof og nýreistar stíflur. Og hann hafði ákveðið að sjá með eigin augum héruðin, þar sem nú herjaði hungursneyð- Hann þurfti að ná í myndir af deyjandi konum úr sulti, með slap- andi brjóst, og af börnum með beinkröm og uppþembda maga- Hann ætlaði að birta þessar myndir í dagblaðinu sínu, þegar hann kæmi heim, og hann vildi því hafa þær góðar. Ferðafélagar Trians virtust hvergi nærri eins hrifnir af um- hverfinu og hann, en það breytti í engu áformum hans. Hitann lagði með óstjórnlegum mætti inn um lokaðar glerrúðurnar, og rykið síaðist inn í bifreiðina og þakti dýrindis dúkinn, sem hún var fóðruð með að innan. Yngri konan þeirra tveggja, sem með voru, þerraði svitann aí andlitinu og hallaði sér örmagna aftur á bak í sætinu. Hún var um tvítugt, andlitsfríð og hörundsbjört, með hrafnsvart hár og tindr- andi augu. Eldri konan var systir Trians. Hún var þakin þykku ryklagi, eins og bíllinn sjálfur, fötin, hárið, jafnvel augnalokin. Hún virtist ekki veita þessu neina eftirtekt, lá með lokuð augu og hálfopinn munn, virtist dotta öðru hvoru. Bílstjórinn einn virtist ekki verða fyrir neinum óþægindum hitanum. Hann var ungur Indverji, stýrði bílnum með öruggum,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.