Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Side 54

Eimreiðin - 01.10.1954, Side 54
286 LlTIÐ BROT ÍTR LlFSINS BOK eimreiðin lega kolryðgaðan ljá liggja á melnum handan við heima-kvíslina, en Runki sagði, að þetta væri bara moldarbarð. Að vísu gat ekki komið til mála að efa staðhæfingu Runka, eftir hans beztu vitund. En kannske vissi hann ekki um ljáinn þarna, og hann sá ekki vel. Það vissi Torfi litli síðan í haust, að Runki hafði ómögulega getað séð hestana niðri í flóanum, enda hafið hann oft heyrt Runka segja, að hann væri farinn að sjá illa. Reyndar hefði hann getað spurt pabba sinn um þetta með ljáinn, en hann var alltaf svo alvarlegur, eins og líka var eðlilegt, þar sem hann var ríkasti og mesti maðurinn í heiminum. Þess var varla að vænta, að slíkur höfðingi gæfi sér tíma til að sinna spurningum hans. Og Torfi litli var líka alltaf hálf feiminn við pabba sinn og reyndar mömmu sína líka, því að hún var bezta manneskjan í heiminum. Hún kunni allt guðsorðið og var gagnkunnug í himnaríki, þar sem guð sat í hásætinu í fallega húsinu sínu. Þar áttu englarnir, vinnufólk drottins, heima, og þeir fallegustu og beztu stóðu alltaf fyrir hásætinu og sungu fyrir guð og um hann, og þeir sungu jafnvel betur en pabbi hans, sem var þó næsta ótrúlegt. En ekki kom samt til mála að efa það, sem mamma hans sagði, því að hún vissi allt um himnaríki. Hún sagði, að allir, sem væru góðir og breyttu vel, færu þangað, þegar þeir dæju, og væru þar með englum guðs. Og þess vegna ákvað Torfi litli að vera alltaf góður og breyta ævinlega vel. Nei. Mamma hans var ekki eiginlega manneskja, nema að nokkru leyti. Hún var svo góð og guðrækin, að hann kom sér ómögulega fyrir með að spyrja hana um jarðnesk efni. Og ekki hafði hann lag á að fræðast mikið af Dabba, hann var að vísu hraustasti og snjallasti maðurinn í heiminum, á karl- mannlega vísu, og hann gat víst allt. Og Torfa litla var mjög hlýtt til hans, einkum síðan í haust, að hann færði honum fullan kassa af skeljum, sem hann hafði tekið úr sjónum. Það var í fyrsta skipti, sem Torfi heyrði sjóinn nefndan. Hann fór því að spyrja um sjóinn, og öllum kom saman um, að hann væri afskap- lega stórt vatn. Og Torfa litla dreymdi sjóinn, en í draumnum var hann ekki annað en gríðarlega stór pottur, meira að segja botnbrotinn, því að vatnið ýmist hvarf að mestu niður um botn- inn eða kom upp aftur. En satt var það, að stór var þessi pottur. Og allt um það voru skeljarnar ákjósanleg leikföng. Og hann gerði krákuskeljarnar að kindum, kúskeljarnar að kúm, hörpu- diskana að hestum og kuðungana að hunduni. Og hann rak stór- bú í rúmunum í baðstofunni. Koddi og yfirsæng urðu að fjöllum,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.