Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Qupperneq 55

Eimreiðin - 01.10.1954, Qupperneq 55
eimreiðin LlTIÐ BROT tJR LlFSINS BÖK 287 en bilið milli yfirsængur og rúmstokks að láglendi, og stóð höfuð- bólið oftast 1 krikanum, þar sem koddi og yfirsæng mættust. ------Og svo var nú hún Gunna vinnukona. En hún var bara kvenmaður og verst, hvað hún gat verið öldungis skilningslaus á karlmannlega yfirburði. Þarna gat hún farið að jagast og orðið bara fokvond, ef hann bleytti sig í fæturna og sporaði gólfið. Það, sem var þó svo karlmannlegt að vera blautur og spora gólfið, eins og glæsimennið hann Dabbi gerði oft. Nei. Hann gat ekki borið neina virðingu fyrir Gunnu, samt var hún stundum góð við hann, en þó oftar önug, enda stóð honum svo sem á sama, hvernig hún var. Hún var bara kvenmaður. En Torfi litli var samt ekki að hugsa um þetta núna, þar sem hann sat flötum beinum í tunglsgeislanum við að leika sér með kuðungana sína. Nú var hann að hugsa um jólin, sem hann hafði heyrt að kæmu ekki á morgun og ekki hinn daginn, heldur hinn daginn. Mamma hans hafði þá um daginn verið að baka sætar kökur og vöfflur, sem hún sagði, að ættu að vera til jólanna, og hún hafði gefið honum að smakka ögn á þessu góðmeti og sagt, að þetta fengi hann á jólunum, að allir ættu þá að fá sætt kaffi, svo yrði látið loga ljós i baðstofunni alla jólanóttina, allir færu í sparifötin og hann mætti meira að segja sofa í þeim um nóttina. Upp úr þessum hugleiðingum stökk Torfi litli á fætur og rak upp eins konar tilhlökkunarskræk, svo hvellan, að allir vöknuðu. „Skárri eru það nú lætin í þér, strákur, að maður skuli ekki hafa frið að sofa. Það er naumast sláttur á þér.“ Það var Gunna, sem talaði. „O-jæja, stúfurinn, þetta er ungt og leikur sér,“ rumdi Runki gamli. „Og ætli ekki sé orðið mál að gefa kúnni.“ Og hann fór að raula sína hversdagsvísu með sínu hversdagslagi, svo hljóð- andi: „Faðir minn átti fagran lund, sem fár þó grætur, að honum eyddi heiftug mund, harma ég einn um daga, kvöld og nætur.“ Torfi litli þóttist nú ósvinnur orðið hafa og lúpaðist nokkuð við ávarp Gunnu. En annað fólk ók sér um stund og geispaði úr sér svefninn. Síðan kveikti Sigrún húsfreyja á lampanum, en Runki fór að gefa kúnni. Var svo tekið til tóvinnu eins og venju- lega. Grímur bóndi kembdi, en húsfreyja spann. Dabbi tvinnaði band, en Gunna prjónaði sokk og Runki þæfði vettlinga og raulaði af og til vísuna sína. Torfi tók upp leiki sína jafnskjótt og hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.