Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 64

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 64
296 ÓLYGINN SAGÐI MÉR eimreiðin mér, að hún hefði ekki labbað fram hjá bryggjunni, án þess að kíkka um borð hjá Færeyingunum — hí-hí-hí. — En elskurnar mínar, þið nefnið þetta ekki við nokkra sálu, þó að maður sé að blaðra þetta. Það var nú bara hreinasta til- viljun, að ég var andvaka í gærkvöldi, annars hefði þetta nú farið framhjá mér.“ Augu þeirra frú Ernu og frú Soffíu mætast sem snöggvast. Þeim er það báðum vel kunnugt, að í hvert skipti sem ball er í „gúttó“ eða útlend skip inni, er Hanna andvaka og fylgist með öllu, sem gerist í götunni, út um kvistgluggann. Talið berst nú að öðru. Þegar búið er að taka skírlífi þeirra Brekkusystra til nákvæmrar athugunar, er vikið að barn- eignum og síðan að framhjátökum. Það er rætt ýtarlega um síðustu siglingu ,,Hrímfaxa“, en á honum eru nokkrir menn úr þorpinu. Ekki er þó rætt um fiskverðið í Grimsby, heldur sögur þær, sem ganga af framferði skipshafnarinnar, meðan báturinn var í slipp úti — sérstaklega þeirra giftu. Þar fær hver maður sinn skammt. Klukkan er orðin hálf þrjú, þegar frúrnar fara að tygja sig. Ari bóndi er löngu háttaður og sker hrúta, svo undir tekur í húsinu, en heimasætan er komin upp til sín og les ,,Rafmagnsmorðið“. Erna stendur lengi hugsandi á eldhús- gólfinu og strýkur pilsið sitt. Svo fer hún inn til bónda síns. Það er annadagur að morgni, og annað kvöld er sauma- klúbbur hjá prestsfrúnni. * Prestshúsið, Kirkjuhvoll, stórt og reisulegt steinhús með nýtízku þægindum, stendur eitt sér dálítið utan við þorpið. Presturinn, séra Ófeigur, er maður á bezta aldri, vígður fyrir nokkrum árum til þessa brauðs, annars er hann ættaður að sunnan. Hann er talinn frjálslyndur í trúmálum — og kannske fleiru! Ef þið viljið vita eitthvað nánar um þetta „fleira", þá spyrjið bara hana Jónínu á Grund! Hún þekkti fólkið hans, þegar hún vann á saumastofunni fyrir sunnan um árið. Þá var Ófeigur í menntaskóla. Skyldi manneðlið breytast mikið við hempuna og kragann? Hún veit það svo sem ekki, hún Jónína. Svo mikið er þó að minnsta kosti víst,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.