Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1954, Page 77

Eimreiðin - 01.10.1954, Page 77
eimreiðin LEIKLISTIN 309 geðja, enda undir aga þröngsýns og ósanngjarns föður, sem lætur það meðal annars bitna á dótt- urinni, að móðir hennar hafði dáið af bamsförum, er hún ól hana. Næsta ömurleg og sem betur fer allfágæt framkoma föður við dóttur sína, en allvel rökstudd hér. Hlutverk Katrínar er lang- erfiðasta hlutverkið í leiknum. En hana leikur Guðbjörg Þor- bjarnardóttir og leysir af hendi með prýði. Leikur hennar er þjálfaður og sterkur, markviss, þar sem mest á ríður, og heldur athygli áhorfenda og samúð óskiptri. Leikkonan nær þeirri hófsemi, samfara styrkleik, í framsögn, sem er einkenni góðs leiks. Tvö atriði í leik hennar verkuðu sérstaklega sannfær- andi og um leið átakanlega: um- komuleysi Katrínar og einstæð- ingskennd í samkvæmi unga fólksins á heimili hennar í fyrra þætti og vonbrigði hennar út af hvarfi unnustans í síðara þætti. Lækninn lék Þorsteinn Ö. Steph- ensen af myndugleik og festu. Nýr leikari, Benedikt Árnason, ungur maður og nýkominn frá * Onnur vísa eftir Skáld-Rósu. Önafngreind vinkona Rósu átti son, sem gjörðist drykkjumaður mikill. Eitt sinn kom Rósa þar sem maður þessi var ölvaður mjög og lét ólmlega. Var það eftir að móðir hans var dáin. Þá varð Rósu þessi staka á munni: Myndi kvölin mæða há móðurhjartað fína, ef að sölum sælu frá sæi breytni þína. Sagt er, að eftir það hafi maður þessi verið gætnari við vindrykkju en áður. (Sagnakona: Frú Petrina S. Guðmundsdóttir frá Djúpavik, 1954, eftir sögn móður hennar, Sigríðar Pétursdóttur, ljósmóður i Kjós i Reykjarfirði, sem var lædd árið 1836 að Stóru-Brekku í Hörgárdal). Jáh. örn Jónsson skráÖi. Frú Montgomery (Helga ValtýsdJ. leiknámi erlendis, leikur unn- usta Katrínar, og má vænta góðs af þessum geðþekka leik- ara með aukinni æfingu og þjálfun. Af öðrum leikendum vakti einna mesta athygli Helga Valtýsdóttir í litlu hlutverki, frú Montgomery, sem leyst var mjög vel af hendi. Leikstjóri var hinn margreyndi Gunnar R. Hansen, sem gegnt hefur því starfi hjá Leikfélagi Reykjavík- ur um nokkur undanfarin ár. Sv. S.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.