Eimreiðin - 01.01.1964, Blaðsíða 34
22
EIMREIÐIN
brott aðeins hluta af lunganu, þeirra öndunarþol er oft mikið
skert.
Þetta eru vissulega miklar og vandasamar aðgerðir, en þó er
skurðdauði orðinn mjög lágur, ef aðgerðin er framkvæmd af æfðum
skurðlækni og svæfingalækni og eftirmeðferð er eins og bezt verður
á kosið.
Það er sjaldnast unnt að nema allt æxlið brott, a. m. k. ekki svo
að um varanlegan bata verði að ræða, ef það er vaxið inn í aðliggj'
andi líffæri eða komin eru meinvörp út um líkamann. Skýrslur
leiða í ljós, að í flestum löndum koma þessir sjúklingar svo seint
til skurðlækna, að fjöldi þeirra er kominn með sjúkdóminn á það
liátt stig, að aðgerð er vonlaus, og ekki tekst alltaf að nema meinið
brott hjá þeim, sem teknir eru til aðgerðar.
Af þeim sjúkdómum, sem oftast er villzt á við greininguna, tua
nefna berklabólgur, sýkla- eða veirulungnabólgu, ígerð í lunga,
útvíkkanir á lungnapípum og ýmsa sveppasjúkdóma. Þeir geta
allir gefið nákvæmlega sömu einkenni og lungnakrabbi.
Til þess að forðast misskilning, er sjálfsagt að geta þess, að nauð-
synlegt getur reynzt að nema brott annað lungað við ýmsa sjúkdóma
aðra en krabbamein. Það er hægt að lifa ágætu lífi og stunda flesta
vinnu, þó að annað lungað sé tekið.
Vísindamenn um allan heim hafa árum saman leitað að lyfi, seI11
gæti eytt krabbameini, án þess að skaða heilbrigða vefi líkamans.
Ennþá hefur þetta ekki tekizt, hvað lungnakrabba snertir. Röntgen-
geislar lækna ekki þennan sjúkdóm, en geta e. t. v. dregið ui
vaxtarhraðanum og orðið nokkur fróun, ef um mikla verki er að
ræða og ákveðin lyf liafa verið notuð í sama skyni.
í stuttu máli: Lungnakrabbi er ægilegur sjúkdómur, sem stöðugt
færist í vöxt. Það þykir nú sannað, að reykingar valdi ákveðnum
tegundum sjúkdómsins. Við höfum nú þegar rannsóknaraðferðn',
sem gera kleift að greina sjúkdóminn í langflestum tilfellum. Ennþa
er ástandið þó þannig, að sjúklingar koma allt of seint til skurð-
lækna, en auðvelt ætti að vera að ráða bót á því, ef sjúklingar leita
læknis strax og einkenni koma fram og læknar láta ekki sitt eftu
liggja. Með fjöldarannsóknum væri kleift að finna lungnakrabba
á byrjunarstigi hjá þeim sem eru einkennalausir, og ef aðgerðu
eru framkvæmdar tafarlaust, er vonin um varanlegan bata marg'
falt meiri.