Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1964, Page 74

Eimreiðin - 01.01.1964, Page 74
62 EIMREIÐIN bindi. Við skínandi hvítan flibb- ann sýndist brúnleitt hörund hans næstum svart. Hann brosti drengja- lega, hálffeimnislega, og lyfti hatt- inum klaufalega, en sagði ekkert. Mary var alltaf öðru hverju að líta við og horfa eftir götunni, til að ganga úr skugga um, hvort Duke Yetter elti sig, en hún gat hvergi komið auga á hann, enda orðið skuggsýnt. Reiðiofsinn í huga hennar fjaraði út. Hún kærði sig ekki um að fara heirn og taldi vera orðið of áliðið kvölds til að fara til kirkju. Frá Upper Main Street lá stutt gata austur á bóginn og niður talsvert bratta brekku, að dálítilli á og brú var yfir ána. Þetta voru endamörk bæjarins í þessa áttina. Hún gekk niður götuna að brúnni, stóð þar í hálfrökkrinu og horfði á tvo drengi, sem voru að veiða í ánni. Herðabreiður maður, klæddur grófgerðum fötum kom gangandi niður götuna, stanzaði á brúnni og ávarpaði hana. Það var í fyrsta sinn, sem hún hafði heyrt nokkurn íbúa bæjarins tala hlýlega um föð- ur sinn. „Þér eruð dóttir Cochrans læknis?" sagði hann í hikandi spurnartón. „Ég geri ekki ráð fvrir að þér vitið, hver ég er, en faðir yðar veit það.“ Hann benti í átt- ina til drengjanna tveggja, sem sátu á grasivöxnum árbakkanum með litlu veiðistangirnar sínar í höndunum. „Þetta eru drengirnir mínir og ég á fjögur önnur börn,“ hélt liann áfram. „Ég á einn dreng enn, og svo þrjár dætur. Ein þeirra vinnur í búð. Hún er á aldur við yður.“ Maðurinn sagði frá kynnum sínum af Cochran lækni. Hann sagðist hafa verið landbúnaðar- verkamaður og vera alveg nýfluttur til bæjarins til að vinna í húsgagna- verksmiðjunum. Síðastliðinn vetur hefði hann verið lengi veikur og því alveg peningalaus. Á meðan hann lá í rúminu hafði einn drengj- anna hans dottið ofan af hlöðulofti og fengið hræðilegan skurð á höf- uðið. ' „Faðir yðar kom til okkar á hverjum degi og hann saumaði saman skurðinn á höfði Tomrna míns.“ Verkamaðurinn sneri ser frá Mary og stóð um stund með húfuna sína í hendinnr og horfði á drengina. „Ég var yfirbugaður og vonlaus og faðir yðar annaðist ekki aðeins mig og drenginn minn, heldur gaf hann líka konunin minni peninga til að kaupa fynr rneðul, matvörur og annað, sem við þurftum að kaupa í verzlunum hér í bænum." Maðurinn talaði svo lágt, að Mary varð að halla sér áfram til að heyra hvað hann sagði- Það lá við að andlit hennar snerti öxl verkamannsins. „Faðir yðar er góður nraður, en ég er hræddur um, að hann sé ekki mjög hamingju- samur,“ hélt hann áfram. „Dreng- urinn og ég komumst til góðrar heilsu og ég fékk vinnu hér í baen- um, en hann vildi ekki taka við neinum peningum af mér. ,Þér kunnið að lifa lífinu með börnum yðar og konunni yðar. Þér vitið hvernig þér eigið að fara að Jrví að gera þau hamingjusöm. Eigið pe'1' ingana yðar sjálfur og notið Jra i
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.