Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 13

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 13
R.EÐA FORSETA ÍSLANDS 85 standa vörð um virðingu þess. Alþingi er elzta og sögufrægasta stofnun þjóðfélags vors. Heiður þess er heiður þjóðarinnar, og frá því ásamt ríkisstjórninni hljótum vér að vænta forustu um úrlausn allra miklivægra málefna. Aldrei mun skorta vandamál við að glíma, hvernig sem árar og hvernig sem markaðir gefast, hvað þá þegar sérstakir örðugleikar steðja að eins og nú á síðustu tímum. Til Alþingis, sem þjóðin sjálf hefur kjörið, og þeirrar ríkisstjórnar, sem er í landinu á hverjum tíma, hlýtur þjóðin að iíta sér til trausts og halds. Vér höfum á síðustu áratugum lifað við góð lífskjör hér á landi og gerum það enn. Á því sviði hefur mikil saga gerzt í minni þeirra sem enn eru ekki nema á miðjum aldri. Til þessa eru margar orsak- ir, sem flestar liggja í augum uppi, en augljóslega á dugur og menntun þjóðarinnar þar mikinn hlut að máli. íslendingar hafa reynzt þess megnugir að fylgjast með framvindunni, ná valdi á tækni tímanna og hafa þann metnað að vilja búa við lífskjör, sem sambærileg séu við það bezta með öðrum þjóðum. Til að ná þessu marki hefur þjóðin lagt á sig mikla vinnu, og það er sann- færing mín, að öll stjórnarvöld, sem í landinu hafa verið, hverju nafni sem nefnast, hafi lagt sig af alhug fram um að greiða fyrir þessari þróun og efla hana. Markmið vor allra í þessum efnum er hið sama, þótt deilt sé um króka og keldur á leiðinni að mark- inu. Ég legg sérstaka áherzlu á þetta og minni ekki hvað sízt hina ungu gagnrýnu kynslóð á að vanmeta ekki það sem hér hefur áunnizt, því að áður en varir verður það hún sem tekur við og ber ábyrgð á hvernig framhaldið verður. En nú, þegar harðnar í ári um sinn, eins og það hefur oft gert áður, hlýtur það að vera keppikefli vort umfram allt, að glata ekki því sem vér höfum feng- ið, heldur standa af oss erfiðleikana með útsjón og fyrirhyggju og nota hvern möguleika til að efla atvinnuvegi vora til lands og sjávar. Við þessu verður að snúast af djörfung, samhug og þjóð- hollustu. Land vort er hart og misgjöfult, en þjóðin er dugmikil og vakandi og hendurnar vinnufúsar. Því ber að trúa og treysta, að sú verði gifta vor, að hér verði áframhaldandi þróun til velmeg- unar og vellíðanar undir samhentri stjórn þeirra forustumanna, sem þjóðin hefur til þeirra verka kvatt. Ef þessu frumskilyrði tekst að fullnægja, þá á ísland og sú íslenzka menning, sem ég nefndi markmið vort að efla, bjarta framtíð fyrir höndum. Þegar ég mæli þessi orð, veit ég þó vel, að margt er nú ugg-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.