Eimreiðin - 01.05.1968, Side 14
86
EIMREWIN
vænlegt í veröldinni, styrjaldir geisa og ókyrrð gerir víða vart við
sig. Vér íslendingar eigum eins og aðrir mikið undir því hver rás
heimsviðburða verður. Þótt vér fáum litlu ráðið um slíkt, ber oss
þó að horfa veðurgiöggum augum til allra átta sjálfra vor vegna,
og það má vera oss mikið gleðiefni, að sæmilegt jafnvægi er nú
í þeim heimshluta sem vér byggjum, og batnandi sambúð milli
þeirra tveggja heimsvelda, sem ber við loft oss til beggja handa.
Stefna vor hlýtur að vera sú að eiga gott og vinsamlegt sam-
starf við allar þjóðir. Undir því eigum vér mikið, en um menningar-
leg samskipti standa oss næst hinar norrænu þjóðir, sem oss eru
skyldastar að uppruna, menningu og viðhorfum. Tengsl vor við þær
mega ekki rofna, heldur ber að efla þau eftir mætti.
Orð mín hér verða ekki öllu fleiri. Ég tek við embætti forseta
íslands með auðmýkt og fullvitandi um þá ábyrgð, sem því fylgir,
en um leið einráðinn í að standa við hana eftir því sem mér endist
vit og auðna til. Ég vil, að því leyti sem í mínu valdi stendur, leggja
mig fram um að láta gott af mér leiða í öllu því er varðar heill og
hamingju þjóðarinnar í veraldlegum og andlegum efnum og bið
guð að gefa mér styrk til þess. Ég vona og bið, að mér auðnist
að eiga gott samstarf við stjórnvöld landsins og hafa lífrænt sam-
band við þjóðina, sem mig hefur kjörið til þessa embættis. Hjá
fólkinu í landinu mun hugur minn verða.