Eimreiðin - 01.05.1968, Page 33
KLUTURINN
Eftir
S. Y. Agnon.
Bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir árið
1966 hlaut ísraelski rithöfundurinn Sam-
uel Yosef Agnon að hálfu á móti Nelly
Sachs, sem einnig er Gyðingur. Agnon
fæddist árið 1888 í Buczacz í Galisíu.
Tvítugur að aldri lagði hann leið sína
til Palestínu og dvaldist þar um hríð, en
sneri aftur til Evrópu árið 1912. Eftir
það bjó hann lengst af í Þýzkalandi, unz
hann fluttist aftur til Landsins Helga ár-
ið 1924. Upp írá því hefur hann átt
heima í Jerúsalem. Hann er eitt helzta
sagnaskáld hebreskt síðari tíma, og
hefur ritsafn hans. m. a. verið gefið út
i tólf bindun. Er þar að finna þrjár stór-
ar skáldsögur, sem eru Brúðarsængin,
Næturgestur og Liðnir dagar, auk þess
rúmlega hundruð smærri sögur og
greinasafn. Hafa ýms af ritverkum Agn-
ons verið þýdd og gefin út á sextán
tungumálum.
I.
Faðir minn sálugi gerði sér árlega ferð á markaðinn í Lescho-
witz til að verzla. Leschowitz er lítill bær og hefur ekkert til að
bera fram yfir önnur þorp í landinu, nenra einu sinni á ári, þegar
kaupahéðnar frá öllum liornunr heims koma þar saman og fal-
bjóða vörur sínar á götunr úti, og allir, senr eitthvað þurfa að kaupa,
verzla við þá. Hér áður, fyrir tveim til þrem mannsöldrum, mættu
hér yfir eitt lrundrað þúsundir nranna, og jafnvel enn í dag, þegar
allt er á niðurleið í Leschowitz, safnast hingað fólk hvaðanæva úr
landinu. Sá kaupmaður er ekki til í allri Galisíu, að lrann eigi sér
ekki búð í Lesclrowitz yfir markaðsdagana.