Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Page 64

Eimreiðin - 01.05.1968, Page 64
136 EIMREWIN komnir af Kain, sagði hann. Þessvegna eru þeir fordæmdir, hvernig sem þeir fara að. Aumingjarnir, varð mér að oiði. Þeir eru ekki Bandarfkja- menn Jressir, hélt hann áfram. Bandarískir negrar ern geðlaus- ar þrælasálir, Uncle Torns. Þess- ir eru frá Vestur-Indíum. Það er allt annað stoff í Jreim. Frumskógajrefurinn hefur hald- ist við í nösum þeirra á Jressum heitu eyjum þar senr þeir brugga rommið, Jreir eru barnamorð- ingjar og galdramenn. Allir hörðustu rnenn negra nútildags eru frá Trínidad eða einhverri annarri eyju þar, Stokeley Car- michael, Malcolm X, Michael X . . . Sem betur fer táknar X ó- Jrekkta stærð, sagði ég. Og viltu kannski meina að þeim kippi meira í kynið til Kains en hin- um. Þeir gæta ekki bróður síns, sagði hann. Þeir drepa hann við fyrstu hentugleika, án ójrarfrar tillitssemi við guð eða djöful. Hvað hafa Jreir að óttast. For- dæmdir hvorteðer. Hann var farinn að tala frönsku við Máritinginn Jregar ég gekk heim skömrnu síðar. Það var volg gola jnettuð þef af regni og sóti sem ríslaði sér af varfærni í gulnuðu laufinu í Lexham Gardens; trén sem stóðu í röð meðfram Jressari fá- förnu akbraut voru þegar næst- um nakin, þótt enn væri langt til hausts. Það var slíkt niða- myrkur í ganginum eftir að ég hafði lokað á eftir mér útidyra- hurðinni að mér birti íyrir aug- um við að leggja Jrau aftur; hundur ekkjunnar urraði niðrí kjallaraganginum en Jragnaði þegar ég hafði Jrreifað mig áfram að slökkvaranum og kveikt. Þetta var skoskur terríer, hjól- beinóttur á bæði fram- og aftur- löppum, andstyggilegt kvikindi með hvítar brúskabrúnir einsog Jrýskt jústisráð á keisaratímun- um. Einsog flestir rakkar af lians standi var hann hrokafullur og uppáþrengjandi og umgekkst gestina með þamrig látbragði að ekkert væri honum kærara en mega bíta þá í kálfana. Ég minntist ég þess nú að hafa lieyrt hann gelta um morguninn, þeg- ar Svíinn haltraði frarn eftir morgunverð. Annars aldrei. Það var heitt í herberginu hjá mér og ég dró gluggann upp og tók ofanaf ritvélinni; ætlaði að skrifa heirn áður en ég færi í háttinn. Nóttin var alveg þögul og gott ef ekki stjörnubjört; Jretta hefði Jressvegna allteins getað verið í einhverju sveita- Jrorpi vestur í Wiltshire. Útum glugga á næsta stigagangi til hægri barst bítilglamur og há- vaði í kvenfólki; ég hafði hug-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.