Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Side 66

Eimreiðin - 01.05.1968, Side 66
138 EIMREIÐIN útaf einhverju blabla þeirra á milli, sú var portúgölsk og þel- dökk og reri í spiki og hárið stóð í brúskum útúr eyrunum á henni, hún þefjaði einsog hest- hús spænska reiðskólans í Kárn- ten. Þetta er næstum það eina sem ég hef ekki getað fyrirgefið Portúgölum. Mennirnir frá UAR voru háv- aðasamir undir borðum og ég leiddi talið að þessum sérkenni- legu kokhljóðum arabískunnar, senr helst rninna á korr r mönn- um senr verið er að skera á háls. Holmgren sperrti brúnina yfir heila auganu — hitt var lokað og lágu að því ótal hrukkur líktog fílsauga — og svaraði í vorkunn- sanrlegum tón: Það leynir sér ekki að þú hefur aldrei skorið nrann á lráls. Að vísu ekki, svaraði ég, en dýr lrinsvegar, kindur og kálfa. Mun- urinn ætti varla að vera nrikill. Og ekki nreira um það að sinni. Svo vinur vor var þá mann- slagari, það gat svosenr vel kom- ið heinr og saman, til þess bentu skakklöppin og tóma fílsglyrnan og aukheldur tók ég nú eftir að annað eyrað á honunr var eitt- lrvað krassað. En það er of mikið af manndrápurum í heiminum tilað þeir geti verið nokkuð for- vitnilegir, svo ég nennti ekki að spyrja neins, nreðfram fyrir þá sök að reynsla mín af morðingj- unr er sú að þeir dekri við glæp sinn, nostri við hann laundrjúgir og ali á lronunr einsog löngu liðnu kvennafari. Þennan dag skrapp ég til St. Albans að glugga mér til lrugbót- ar í keltneskar og rómverskar fornminjar og heinrsótti síðan kunnfólk nritt þar allskanrnrt frá, í Hertfordshire. Það var í þorps- legri smáborg, þó heldur stærri en Akureyri, og húsin og göturn- ar með svip sem laug því alúð- lega að manni að ]rau hefðu vax- ið uppúr þessari gönrlu friðsömu jörð engu síður en trén og gerð- in, sem gerðu allan staðinn að nrósaík glóðvolgra skugga; fuglasöngur var lrér ofar á baugi en mannanrál, guði sé lof. Og þó aðeins hálftíma ferð í Lundúna- þvargið. Þarna gleymdi ég tíman- um í tvo—þrjá daga, eða kannski næstum viku. Þar kom þó að ég fór til Lund- úna aftur gagntekinn fítonskrafti líktog Bódísea; það var hvæsandi rigning þegar ég endasentist inn- unr dyr frú Ríad í Lexlranr Gardens fjörutíu og something, gráir droparnir skullu á steyp- unni einsog vélbyssukúlur og endurköstuðust sundurtættir uppí buxnaskálmarnar. Og það var einsog við manninn nrælt; ég hafði ekki fyrr lokað að nrér uppi á herbergi en barið var að dyr- unr. Það var Holmgren og í því, þótt ísblá lrarkan í auganu væri sönr og hvunndags; kannski var

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.