Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1968, Side 88

Eimreiðin - 01.05.1968, Side 88
160 EIMREIÐIN „Það máist seint af oss merkið það, er móðirin lét í arf. Og áður en Vestur-ísland deyr fer ýmislegt stórt í hvarf. Um eilífð verður á einhvern hátt íslenzkt vort sálarstarf." Það fer að vonum um eins yfirgrips- mikið rit og þessi bók Valdintars Lin- dals er, að skoðanamunur geti orðið um túlkun liöf. á einstökum atriðum, suntar niðurstöður hans og mat Iians á málefnum og mönnum. Eg lít t. d. svo á, að Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi hefði átt ítarlegri um- sögn skilið, jafn víðtækan og mikil- vægan þátt og það hefur um hálfar aldar skeið átt í viðhaldi íslenzkra ætt- artengsla og menningarerfða meðal ís- lendinga í Kanada og annars staðar vestan hafs. Ekki er ég heldur alger- lega sannnála höf. um mat hans á þeim vestur-íslenzku skáldum, sem hann tekur sérstaklega til meðferðar í bók sinni, en vitanlega er slíkt mat ávallt mjög persónulegs eðlis. En hvað sem þeim eða örðum að- finnslum líður, þá er þetta rit, þegar á allt er litið, bæði tímabært og hefur inni að halda mikinn fróðleik, sem varanlegt gildi liefur; það er í heild sinni liöf. til sóma, og skuldum vér landar hans honum sérstaklega mikla þökk fyrir það. Og vissulega er það mikið afrek af hálfu áttræðs manns að hafa sarnið þetta umfangsmikla rit á eins stuttum tíma og það varð að gerast. En til þess að fá nokkra hugmynd um það, hve geysimikil vinna liggur að baki ritsins, þurfa menn eigi annað en kynna sér heimildaskrá höf. og neðan- málstilvitnanir. Hins vegar hefði bók- in vafalaust að ýmsu leyti grætt á því, ef höf. hennar liefði haft rýmri tíma til umráða við samningu hennar, eins og liann tekur sjálfur fram, um upp- talningar einstaklinga, i athugasemd nær bókarlokum (bls. 502). Þetta efnismikla rit er ítarlegt og margþætt yiirlit yfir baráttu- og sigur- sögu íslendinga í Kanada, hugsjóna- og athafnasögu þeirra frá upphafi vega þeirra þar og fram á þennan dag. Ritið ber því órækan vott, hve margir í þeirra hópi ltafa á hinum ýmsu starfssviðum lagt mikinn skerf og var- anlegan til kanadisks þjóðlífs og menn- ingar. í þeim flokki stendur Valdimar Jakobsson Lindal framarlega. Richard Becli.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.