Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 19

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 19
KRISTÍN INDRIÐADÓTTIR Steingrímur segir reynsluna hafa sannað að börn í skólum, þar sem viðfangs- aðferðin (project method) sé notuð, afli sér víðtækari þekkingar því þau afli hennar í ákveðnum tilgangi og af eigin áhuga. Sú þekking verði ekki frá neinum tekin. Með samvinnu og samtölum lærist þeim „að lifa saman í bróðerni og samúð og vinna að heill fjöldans" (bls. 10). Hvernig það heppnast er „bezti mælikvarðinn á menningu og siðgæði þjóða og einstaklinga". Steingrímur telur ekkert stuðla fremur að framförum í kennslu en rannsóknir. Það sé nauðsynlegt að nota mælikvarða á kennslu og hann þakkar raunvísindunum (tilraunum) að það sé nú mögulegt og þau hafi því í rauninni valdið stjórnar- byltingu á skólasviðinu. Hann fullyrðir að með mælingum og samanburði á ýms- um þáttum skólastarfsins, börnum og kennurum, megi meta frammistöðu skólanna til þess annaðhvort að bæta ástandið eða hvetja þá sem eru á réttri leið. Til dæmis sé skynsamlegt að raða í bekki eftir getu til þess að sama verkefnið sé ekki fengið flestum jafnöldrum án tillits til þroskamunar. Steingrímur er sannfærður um að þau börn, sem seinfærust séu, missi þá áhugann, sjálfstraustið og sjálfsvirðinguna og afburðabörnin hneigist til slæpingsháttar og óknytta. Þrjú ráð eru nefnd til að bæta úr þessu: - Að mæla þroskastig og hæfileika barna og flokka eftir mælingunni en ekki eftir aldri. - Að stofna sérstaka ogfámennari bekki fyrir þá sem eru frábrugðnir fjöldanum. - Að skipta vetrinum upp í tvö tilfjögur tímabil til þess að þau börn sem dragast aftur úr þurfi ekki að endurtaka heils árs nám. „Menntun handa öllum" eiga að vera einkunnarorð í lýðfrjálsu landi segir Stein- grímur (bls. 19). Barnaskóli upp að 12 ára aldri ætti að sjá um uppeldi í einum farvegi. Þá lýkur barnsaldrinum og miklar breytingar verða á líkams- og sálarlífi barna. Þá ætti unglingaskóli að taka við í annarri byggingu. Þar væri kennsla greinaskipt, ýmist bókleg eða verkleg, og á hendi sérgreinakennara. í öllum greinunum sem Steingrímur sendi að utan koma vel fram áhrif frá þeim hugmyndum sem haldið var á lofti í Teachers College. Að hætti verkhyggjusinna telur hann skólann gegna félagslegu hlutverki til að bæta mannlífið í fjölhyggju- samfélagi. Til þess þarf skólinn að taka upp nýja starfshætti, byggða á sálfræðilegri þekkingu á börnum. Stjórnarbyltinguna sjálfa kennir hann þó einkum við þær vísindalegu mælingar sem völ var orðin á að nota í þágu uppeldis og skólastarfs, ekki síst fyrir áhrif frá Edward Thorndike. Frá þeirri stefnu sem hann kynnti í „Stjórnarbyltingunni" hvikaði hann aldrei en hélt áfram að útfæra hana í orði og verki allan starfsferil sinn. ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR UM 1920 Staða barnafræðslunnar og afstaða til skóla Meðal íslendinga voru um 1920 ákaflega skiptar skoðanir um gildi barnaskóla- göngu. Ýmsir vildu fremur efla heimafræðsluna í sveitum á grundvelli bænda- menningarinnar gömlu. Flestir gátu sæst á að í bæjum og þéttbýli væru skólar 17
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.