Ægir - 01.02.1944, Síða 36
66
Æ G I R
Frá fiskiþinginu 1944.
Fiskiþingið, hið 17. í röðinni, var haldið
í Reykjavík dagana 29. jan. til 27. febrúar.
Þessir fulltrúar sátu þingið: Úr Reykjavík:
Rorsteinn Þorsteinsson, skipstjóri, Bene-
dikt Sveinsson, bókavörður, Óskar Hall-
dórsson, útgerðarmaður, og Þorvarður
Rjörnsson, hafnsögum. Úr Vestfirðinga-
fjórðungi: Arngr. Fr. Bjarnason, útgerðar-
maður og Einar Guðfinnsson, útgerðar-
maður. Úr Norðlendingafjórðungi: Heigi
Pálsson, erindreki, og Magnús Gamalíels-
son, útgerðarmaður. Úr Austfirðingafjórð-
ungi: Árni Vilhjálmsson, útgerðarmaður,
og' Þórður Einarsson, útgerðarmaður. Úr
Sunnlendirigafjórðungi: Gisli Sighvatsson,
útgerðarmaður og Stefán Franklín, útgerð-
armaður. Gísli Sighvatsson gat þó ekki set-
ið þingið nema fvrstu daga þess.
Alls komu 36 mál fyrir þingið og fengu
þau öll afgreiðslu. Mikilvægasta rnálið,
sem fiskiþingið afgreiddi, var breytingar á
lögum fiskifélagsins. Hefur í langa hríð
staðið til að gera breytingar á lögum fé-
bluta tímabilsins var þó mb. Viðir i stað
mb. F"reyju.
Tundurdufl voru nokkur skotin niður af
varðskipunum að þessu sinni, en þó mikið
í'ærri en áður. Skaut Ægir niður 5 dufl,
Óðinn 1 og Sæbjörg 1.
14. Skiptapar og slysfarir.
Mikið var um slysfarir á sjó og manntjón
af þeim völdum óvenjumikið. Alls drukkn-
uðu í sjó 71 íslenzkur maður, þar af 1 af
crlendu skipi, en auk þess drukknuðu 3 í
vötnum. Af skotárás flugvélar fórust 2 sjó-
menn islenzkir. Ekki er með fullu vitað
bve margir þeirra, sem fórust, bafa týnt lif-
inu af völdum styrjaldarinnai*, en með
vissu er þó vitað uin 6, og e. t. v. fleiri.
lagsins og þar með að gera starfsemi þess
víðækari og áhrifaríkari fyrir sjávarútveg-
inn. Menn hafa ekki verið á eitt sáttir um
það, á hvaða lund félaginu skyldi breytt
og sérstaklega hafa verið deildar meiningar
um það, hverjir ættu að hafa atkvæðisrétt
og kjörgengi til fiskiþings og fjórðungs-
þinga. Mikið af starfstima fiskiþingsins fór
í að fjalla um þetta mál og náðist að lok-
um samkomulag um lausn málsins.
Samkvæmt hinum nýju lögum var nú
kosin 5 manna stjórn i félaginu og er kjör-
tímabil hennar þangað til næsta fiskiþing
kemur saman, og skal þá á ný kosin stjórn
og þá til 4 ára.
Stjórn fiskifélagsins skipa nú:
Davíð Ólafsson fiskimálast jóri. Vara-
maður hans Þorsteinn Þorsteinsson, skip-
stjóri.
Emil Jónsson, vitamálastjóri. Varamað-
ui hans Gísli Sighvatsson, útgerðarmaður.
Ingvar Pálmason, alþingismaður. Vara-
Mesta sjóslysið á árinu varð þegar ms.
Þormóður frá Bíldudal fórst í Faxaflóa, er
hann var á leið til Reykjavikur hinn 18.
febrúar, ineð 7 skipverja og 24 farþega
um borð.
A árinu fórust eða eyðilögðust:
1 botnvörpungur.
7 vélbátar yfir 12 rúml. br.
1 vélbátur undir 12 rúml. br.
1 flutningaskip.
Bátar undir 5 rúml. br. eru ekki taldir
hér með. Af þessum 10 skipum týndust 4
í hafi án þess að mannbjörg yrði, 4 strönd-
uðu, 1 sökk í róðri og 1 eftir árekstur.
Um tjón á erlendum skipum og mönnum
liér við land er ekki til neinar fullnægjandi
upplýsingar.