Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 3
TÍMARIT LÖGFRÆÐINGA
S. hefti 1956.
JL
aruóion .
Lögfræðirit Páls amtmanns Briem
Allt frá því, er Magnús konferensráð Stephensen leið
og fram til þess að lagaskólinn tók til starfa, má segja, að
íslenzkir lögfræðingar hafi fátt látið eftir sig liggja af
ritum og ritgerðum um lögfræðileg efni. Tvo fræðimenn
ber þó hæst í því efni á þessu tímabili, þá Vilhjálm Finsen
og Pál Briem. Vilhjálmur Finsen hefur svo sem kunnugt
er unnið íslenzkri réttarsögu ómetanlegt gagn með hin-
um ágætu útgáfum sínum af handritum Grágásar, og auk
þess ritað manna bezt um rétt þjóðveldistímans. Hinn 19.
október síðastliðinn voru 100 ár liðin frá fæðingu Páls
Briem, og er það maklegt, að lögfræðirita hans sé í tilefni
af þessu afmæli hans getið að nokkru í þessu tímariti.
Páll Briem varð stúdent árið 1878 og tók þá að stunda
laganám í Kaupmannahafnarháskóla. Á námsárum sínum
þar kynntist hann Vilhjálmi Finsen, og til þeirra kynna má
eflaust rekja áhuga hans á réttarsögu Islands. Að öðru
leyti mun hann einkum hafa orðið fyrir áhrifum frá próf.
Carl Goos, en Goos var mestur skörungur danskra lög-
fræðinga um þær mundir og hafði djúp og varanleg áhrif
á marga lærisveina sína.
Páll Briem var mjög hneigður til fræðimennsku, og
þykir mér trúlegt, að hann myndi framar öðru hafa kosið
129