Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 59
Verðlaunin lilaut Knud Ehlers landr.málflm. Ritgerð
hans var gefin út 1955 og heitir: Hándhævelse af und-
ladelsespligten“.
5. Stjórnlagafræði, þjóðaréttur, alþjóðlegur einkamála-
réttur.
Hinn 5. júní 1953 fengu ný stjórnskipunarlög gildi í
Danmörku. Með þeim voru ýmsar breytingar gerðar á
eldri lögum og nýmæli sett. Nauðsyn var því á að lögfræði-
leg rannsókn og skýring á hinum nýju lögum yrði fram-
kvæmd liið fyrsta. Þetta tókst prófessor Paul Andersen
þegar árið eftir, er hann gaf út bók sína: „Dansk Stat-
forfatningsret“. Þetta er mikil hók — 809 hls. — og hefur
fengið mjög góða dóma.
Alf Ross prófessor gaf út 1954, með aðstoð Isi Foighel
lektors: „Studiehog i folkeret". Bókin liefur að geyma
nokkurt safn þýðingarmikilla dóma á alþjóðavettvangi og
handliæg að því leyti. Hún her og nokkurn blæ „casebook"-
kennsluaðferðarinnar, sem mjög er notuð í Ameriku. Er
þar um virðingarverða tilraun að ræða, sem á fullan rétt
á sér ásamt þeim aðferðum, sem almennt tíðkast á Norð-
urlöndum.
6. Dtgáfur laga, dómasöfn og nefndaálit.
„Karnows Lovsamling“, sem er útgáfa hinna mark-
verðustu laga ásamt skýringum, kom út í 5. útg. 1955 (2
hindi). Ritstjórn höfðu á hendi þeir prófessorarnir Stephan
Hurwitz og W. E. v. Eyben. Auk þeirra liafa margir aðrir
sérfróðir menn lagt hönd að verki.
Framliald af: „Systematisk oversigt over domme i krim-
inelle sager“ kom út 1954 og nær yfir timabilið 1943—
1952. Útgáfuna annaðist A. Bach héraðsdómari.
Að því er persónusögu varðar má nefna: A. Falk-Jensen
og H. Hjort-Nielsen: „Candidati og examinati juris 1736
185