Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 63
við útgáfuna. Sjálfir mættu þeir þó rita meira. Ég vil
nota tækifærið og óska þeim til hamingju með 10 ára af-
mæli ritsins, og árna því heilla.
Eins og kunnugt er hóf þetta rit göngu sína í marz 1951.
Það á að sjálfsögðu fullan tilverurétt, þótt Úlfljótur komi
út. Verksvið ritanna eru ólík þótt bæði fjalli um lögfræði-
leg efni. Er því hart að sífellt skuli þurfa að hvetja lög-
fræðinga til þess að koma með efni í ritið. Og enn er það
í fullu gildi, sem fyrsti ritstjóri þess sagði í ávarpsorðum
sínum: „En eitt verða lagamenn að muna. Tímarit þeirra
getur ekki lifað við sæmilegan orðstír, nema margir þeirra
leggi því til efni. Mikið að vöxtum þarf hver einstakur ekki
að leggja af mörkum, en sem flestir eitthvað."
Gestur. S. 1. haust var hér á ferð A. J. M. Van Dal, fram-
kvæmdastjóri félagsskaparins „Internatinonal Commission
of Jurists. Félagið hefur aðalstöðvar sínar í Haag. Erindi
Van Dal hingað var að kynna félagsskapinn og stefnumál
hans. Einkunnarorð félagsins eru: „For the Rule of
Law“ og nánar orðað: „That every State and every
citizens shall be free under the Ruleof Law“. Forseti félags-
ins er Joseph Thorson, hinn vesturíslenzki lögfræðingur,
sem hér er að góðu kunnur. Deildarfélög eru í fjölmörg-
um löndum. Lögmannafélagið gekkst fyrir samkomu þar
sem Van Dal flutti erindi.
Frá Háskólanum. Á aldarafmæli Páls Briem amtmanns,
19. október 1956, afhentu ekkja hans, frú Álfheiður Briem,
börn hans ogtengdabörn Háskólanum að gjöf kr. 35.000.00
til stofnunar Minningarsjóðs um hann. I gjafabréfinu seg-
ir: „Sjóðurinn er afhentur Háskóla Islands til eignar og
umráða og tengdur lagadeild. Sjóðnum er fyrst og fremst
ætlað að efla þekkingu á lögum og rétti og styrkja lögfræði-
lega vísindastarfsemi." Skipulagsskrá munu gefendur
síðar semja.
189