Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Blaðsíða 66
Annar framsögumaður: Nils Herlitz prófessor,
Svíþjóð.
2. Félagsmál.
3. Þingi slitið.
Þeir, sem þegar hafa gerzt félagar í sambandi norrænna
lögfræðinga, teljast vera það áfram, unz úrsögn hefur
borizt stjórn hverrar deildar. Islenzkir lögfræðingar, sem
gerast vilja félagar, skulu tilkynna það framkvæmdar-
stjórn íslenzku deildarinnar.
Öllum félagsmönnum ber að greiða félagsgjald, kr. 25.00
fyrir þá, sem eigi sækja þingið, kr. 50.00 fyrir þá, sem
sækja þingið einir, og kr. 75.00 fyrir þá, sem koma með
maka. Allir félagsmenn fá rit með ritgerðum aðalfram-
sögumanna og umræðum á þinginu.
Þeir íslenzkir lögfræðingar, sem sækja ætla þingið í
Helsingfors í sumar, skulu tilkynna það einhverjum undir-
ritaðra fyrir 1. apríl 1957 og fyrir sama tíma ber öllum
félagsmönnum að greiða félagsgjöld sín.
Reykjavík 26. janúar 1957.
1 framkvæmdarstjórn íslenzku deildarinnar:
Árni Tryggvason, hæstaréttardómari, Ólafur Jóhannesson
prófessor og Theodór B. Líndal prófessor.
192