Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Page 45

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Page 45
Reisti liún kröfur þessar á því, að sjóslys þetta og fjör- tjón H., er af því leiddi, hafi eingöngu verið sök skip- stjóra togarans. W. krafðist sýknu. Var sú krafa á því byggð, að bát- verjar liafi átt alla sök á slysinu. Sök á slysinu var skipt þannig, að % hlutar voru lagðir á skipstjóra togarans, en 1,4 hluti á bátverja. J. taldi dóttur sina S. eiga rétt til sömu bóta úr hendi W. og hefði hún verið eiginkona H., er hann lézt. Var tryggingafræðingur fenginn til að reikna út tjón hennar á þeim forsendum. Reiknaðist honum tjón S. við að missa lielming áætlaðra vinnutekna H. vegna fráfalls hans nema kr. 317.644.00, er dregið liafði verið frá tekjunum lög- ákveðið meðlag með dóttur þeirra, svo og kapitalverðmæti 1000 króna ársgreiðslna til hennar umfram lögákveðið meðlag til 21 árs aldurs. Var greind fjárhæð krafa J. f. h. S. vegna missis framfæranda. Krafa hennar vegna rösk- unar á stöðu og högum, er var áætluð, nam kr. 250.000.00. Sem fyrr getur, voru S. og H. heitbundin og höfðu haf- ið sambúð og stofnað lieimili, er hann lézt. Enn fremur var S. þá þunguð af hans völdum. Að svo vöxnu máli var talið, að S. ætti rétt til bóta fyrir missi framfærslu vegna dauða H., skv. 2. mgr. 264. gr. hgl. Þótti sá skilning- ur liafa stuðning í ákvæðum laga nr. 50/1946. Hins veg- ar vrði sambandi þeirra ekki jafnað til hjúskapar og því eigi unnt að leggja til grundvallar við ákvörðun bóta til hennar vegna missis framfæranda útreikning trygginga- fræðingsins, en höfð var liliðsjón af honum. Var tjón S. vegna missis framfæranda og röskunar á stöðu og hög- um hæfilega áætlað í einu lagi kr. 180.000.00. Höfðu þá verið dregnar frá bætur, er hún hafði fengið greiddar frá Tryggingastofnun rikisins upp í tjón sitt að fjárhæð kr. 14.000.00. Var W. dæmdur til greiðslu 3/4 nefndrar fjár- hæðar, eða kr. 135.000.00. Tryggingafræðingnum reiknaðist tjón R. vegna missis föðurins sem framfæranda nema kr. 41.666.00 miðað 171

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.