Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 26
skugga um, að það sé þinglýsingartækt. Á þessari til-
högun eru ýmsir auðsæir kostir. Með dagbókarfærslunni
fæst >'firleitt óbrigðul vissa um það, hvenær skjal barst
til þinglýsingar. Við viðtöku skjals i upphafi þarf dómari
aðeins að kanna ytri ágalla á skjali, er á ber, en fær
síðan allgott tóm til að þrautkanna það, áður en til
færslu á því kemur í þinglýsingarbók. Hagsmunum þing-
lýsingarbeiðanda er og borgið, þar sem forgangsáhrif
þinglýsingar teljast frá dagbókarfærslu þess. Ágallarnir
á skipulaginu eru þeir, að hér fer fram tvennskonar könn-
un á skjali og tvennskonar bókfærsla. 1 þinglj'singar-
umdæmum, þar sem tiltölulega fá skjöl berast, er þetta
skipulag allt of brotamikið. Tekið var sérstaklega til
athugunar að lögfesta slíkt skipulag i kaupstöðunum, en
frá því var horfið. Hins vegar stefna ákvæði 7. gr. frv.
að auknu örvggi i þinglýsingarstarfseminni með því að
þau létta þeirri skvldu af dómara að afgreiða skjöl þeg-
ar í stað, svo sem nú er í reyndinni, en ætla honum
þess í stað nokkurn tíma til athugunar á skjölum. Samkv.
2. málsgr. 7. gr. frv. ber dómara að greiða úr því svo
fljótt sem föng eru á og eigi siðar en innan tveggja vikna
frá þvi, að skjal barst til þinglýsingar, hvort það verði
fært í þinglýsingarbók, enda verður skjal ekki afhent þing-
lýsingarbeiðanda, fyrr en þeirri rannsókn er lokið. Er
mjög' mikilvægt fyrir dómara að fá slíkan frest, en hags-
munum þinglýsingarbeiðanda er hér ekki stefnt i hættu,
þar sem dómara er boðið i 1. málsgr. 7. gr. að rita á
skjal móttökudag' og stund, og er það full sönnun fyrir
þvi, hvenær skjal barst til þinglýsingar, enda ber að telja
forgangsáhrif þinglýsingar frá þeirri stundu. Að sjálf-
sögðu gæti þinglýsingarbeiðandi fengið sérstaka kvittun
dómara fvrir viðtöku skjalsins. Um afleiðingu þess, að
láðst hefur að færa skjal í þinglýsingarbók innan frests,
er greinir i 2. málsgr. 7. gr. frv., eru fyrirmæli í 18. gr.
frv. Ef yngra skjali, sem ekki getur samrýmzt þvi, er
fyrr barst, er þinglýst eftir þennan tíma, er tvennt til.
24
Tímarit lögfrœöinga