Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 27
Samkv. 18. gr. frv. má þá ákveða, að yngri rétthafinn
verði að þoka fyrir liinum eldra, en liitt yrði þó jafn-
aðarlega, að eldri rétthafinn hlyti að vægja. í báðum
tilvikum getur lcomið til bótagreiðslna úr rikissjóði, shr.
18. og 49. gr. frv.
1 8. gr. frv. eru ákvæði um þinglýsingarbækur. Gætir
þar nokkuð nýmæla. Þinglýsingarbækur skulu vera laus-
blaðabækur. Samkv. frv. er skylt að halda sérstaka þing-
lýsingabók um bifreiðar, en samkv. 11. gr. 3. málsgr. laga
30/1928 er slíkt lieimilt, en ekki skylt. Þá er mælt fyrir
um sérstaka þinglýsingabók fyrir loftför, en nú er nokk-
uð á reiki, liver háttur er liafður á færslu skjala, er loft-
för varða. Öll skjöl, er varða skrásetningarskyld skip, á
að færa í skipabók, hvort sem skip eru undir 5 smálest-
um eða stærri. I 53. gr. frv. eru ákvæði um gildistöku
þessa skipulags.
1 9. gr. frv. er mælt fyrir um færslu skjals í þinglýs-
ingarbók og vottorð dómara á það eftir að það hefur
verið bókfært. Eftir skipulagi frv. getur þurft að rita
tvennskonar vottorð á skjal af hendi dómara, þ. e.
vottorð um viðtöku skjals og votlorð um færslu þess
í þinglýsingarbók. Oft fer þetta tvennt þó saman, þ. e.
í þeim tilvikum, er dómari telur sig hafa tök á að af-
greiða skjal þegar í stað eftir viðtöku þess. -— í 3. málsgr.
eru fyrirmæli um birtingu þinglýstra skjala. Nú um hríð
hefur birtingu verið hagað mismunandi í Reykjavík ann-
ars vegar og í öðrum umdæmum hins vegar, og er þó
raunar um þrenn tilhrigði að tefla (Reykjavík — aðrir
kaupstaðir — aðrir landshlutar), og vísast nánar um það
til greinargerðar frv. f frv. er lagt til, að skipulag það verði
tekið upp hvarvetna, sem lögfest var í Reykjavík með lög-
um nr. 65/1943 og fólgið er í þvi að gera vikulega skrá um
þinglýst skjöl, sem borizt hafa, og láta hana liggja frammi
á skrifstofu dómara fulla viku. Frekari birtingar þarf
ekki samkv. frv. i kaupstöðum og þinghám, þar sem
dómari hefur aðsetur. Annars staðar er boðið að lesa
Tímarit lögfræöinga
25