Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 30
svo að það myndi taka starfsfólk skrifstofu verulegan
hluta af afgreiðslutíma þess dags að kynna sér skjölin,
„og má þá lita svo á, að þau séu ekki afhent, fyrr en í lok
afgreiðslutíma þess dags, er þau bárust“. Er hér um all-
raunhæft tilvik að ræða, einkum í Reykjavik, og er ætl-
andi, að ákveðið, ef lögfest verður, muni draga úr þeim
óvanda hjá sumum stofnunum að safna saman skjölum
og senda þau í stórslöttum, ef svo má að orði kveða. Hitt
frávikið er greint í 3. málsgr. 15. gr., um þau tilfelli,
er skjöl berast á skrifstofu t. d. í pósti eftir lok skrif-
stofutima. Ber þá að lita svo á, að þau skjöl hafi borizt
í upphafi skrifstofutima næsta dags. Þetta tilvik er að
vísu fremur fátitt, en rétt þykir þó að hafa ákvæði um
það. Ráðherra er og heimilað að mæla svo fyrir i reglu-
gerð, að skjöl, sem ekki berast fyrr en ein klukkustund
er eftir af skrifstofutima, skuli teljast afhent næsta dag.
1 16. gr. frv. eru ákvæði um það, er tvö skjöl eða fleiri,
sem ekki geta samrýmzt, eru afhent samtimis til þing-
lýsingar. Samkv. 8. gr. þinglýsingarlaganna frá 1928 geng-
ur það skjal fvrir, þegar svo er ástatt, sem fyrr er dag-
sett. Sú regla er gömul, og er hún m. a. greind i N. og
D.L. Dagsetningar skjala eru langt frá því að vera áreið-
anlegar, og mun tæpast fást full trj'gging fyrir því, að
dagsetningar skjala séu rétt greindar, 'þótt áskilið sé, að
skjöl séu vottfest, svo sem gert er með 22. gr. frv. Af
þessum sökum var horfið frá reglu D. og N.L. með ný-
skipan þinglýsingarmála á Norðurlöndum um og eftir 1930,
en í stað þess lögfest sú regla, að öll skjöl, sem berast
sama dag, séu jöfn að þinglýsingargildi, ef þau styðjast
við löggerning. Er það rökstutt með því, að ekki sé rélt
að gera upp á milli skjala, þegar svo skammt er á milli
þess, að þeim sé leitað þingK'singar. Slikri tilhögun er
og tæknilega auðvelt að koma við, er dagbók er færð,
þar sem í henni fæst yfirlit yfir öll þau skjöl, sem af-
hent hafa verið til þinglýsingar tiltekinn dag. Þegar dag-
bókinni er sleppt, svo sem gert er ráð fyrir í þinglýs-
28
Tímarit lögfrœöinga