Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 40

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Page 40
ur það að sjálfsögðu verið t. d. veðbréf, sem grandlaus við- semjandi liefir tekið við í trausti þess, að eignarheimild væri agnúalaus. Uppistaðan í ákvæði 33. gr. frv. er það, að viss gildis- áhrif eru tengd við þinglýst skjöl, er varða eignarheimild, — þau eru talin gild gagnvart grandlausum viðsemjend- um, traustfangsreglur eru látnar taka til þessara skjala, en um nokkur þessarra skjala tekst ríkissjóður á hendur áhættuna á ógildi þeirra. Þessar reglur hagga hins vegar ekki þvi, að löggerningur kann að vera ógildur í skiptum afsalsgjafa og afsalshafa. Um skjöl, sem gefin eru út fyrir gildistöku laganna, sjá 52. gr. 4. málsgr. 6. Heimildaráhri-f þinglýsingar. I 34. gr. frv. er fjallað um heimildaráhrif þinglýsingar. Þar segir, að leiga, afgjöld og aðrar greiðslur verði innt- ar til þeirra, sem heimild hafa eftir þinglýsingarbókum til að veita þeim viðtöku, enda sé greiðandi grandlaus um, að viðtökuheimild hafi horfið öðrum á hönd. Sama gegnir um uppsagnir og svipaðar aðgerðir. Slíkum ákvæðum er ekki til að dreifa í settum íslenzkum lögum, en oftast mvndi eftir þeim farið að núgildandi rétti. Er til mikillar leiðbeiningar og hægðarauka fyrir viðskiptalífið að liafa slík ákvæði að hyggja á. 7. Tímabundið gildi þinglýsingar. Aflýsingar. 1 35.—38. gr. eru ákvæði um tímabundið gildi þinglýs- ingar. 1 þinglýsingarlöggjöf hlýtur að skipta höfuð- máli að húa svo um, að þinglýsingarbækur veiti glöggt yfirlit yfir réttindi, sem í gildi séu, en skjölum, sem mæla um brottfallin réttindi sé byggt út, þ. e. að þinglýsingar- bækur séu í samræmi við veruleikann að þessu leyti. Þessu markmiði yrði að sjálfsögðu náð, ef aðiljar þeir, sem hlut eiga að máli, hefðu hirðu á að aflýsa skjölum jafn harðan eftir því sem þau falla úr gildi. Reynslan hefir sýnt, að 38 Tímarit lögfrœöinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.