Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 59
í lengri tíma en 1—3 daga. Gæzlufanga, sem geyma þyrfti
lengur, yrði ég áframhaldandi að senda til gæzlu í Reykja-
vík. Hina aðra fangaklefa má á sama hátt, einkum hvað
snertir betri lýsingu, gera vistlegri með litlum tilkostn-
aði. Að öllu samanlögðu tel ég, að fangahúsmálin hér 1
Keflavík séu í viðunandi horfi eins og er. Viðbrigðin við
flutning fangahússins og lögregluvarðstofunnar frá
braggaskriflinu 1 önnur húsakynni voru mikil.“
Síðan skýrir bæjarfógeti í bréfi sínu frá áformum um
aðra lausn þessara húsnæðismála en ofan á varð og telur
hann flutninginn í núverandi húsnæði hafa verið á sínum
tima „hreint neyðarúrræði" hjá þeirri lausn, sem hann
hafði áformað.
Að lokum segir svo í bréfinu: „Ég skal taka það fram,
að ég hefi þegar gert ráðstafanir til að útbúnaður og lýs-
ing fangahússins og klefanna verði bættur svo sem nauð-
synlegt er og kostur er á við þau skilyrði, sem fyrir hendi
eru.“
4. Keflavíkurflugvöllur
Þar er nýbyggð lögreglustöð, sem tekin var í notkun í
síðastliðnum nóvembermánuði. 1 þessari byggingu eru 4
fangaklefar, sem eigi eru enn fullgerðir. Segir lögreglu-
stjórinn í bréfi, dagsettu 30. maí s.l., að vonir standi til að
klefarnir verði fullgerðir á þessu ári, enda sé þess brýn
þörf, að unnt sé að taka þá í notkun. Segir síðan í bréfinu:
„Hér er það æði títt, að lögreglan verði að hafa afskipti
af ölvuðum mönnum, sérstaklega 1 sambandi við dansleiki,
og hefir þeim, er þurft hefir að setja í fangageymslu, verið
komið fyrir í fangahúsinu í Keflavík, en þangað er stutt
að fara. Gæzluföngum verður að koma fyrir í Hafnarfirði
eða Reykjavík, og er það hvorutveggja óþægilegt og dýrt.
Er fangaklefar verða teknir hér í notkun, lagast þetta
mjög mikið.“
Virðast þessir 4 klefar verða allgóðir sem geymsla hand-
tekinna manna og til skammvinns gæzluvarðhalds.
Timarit lögfrœöinga
57