Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 60
5. Kópavogur
Þar er ekkert fangahús. I bréfi bæjarfógetans, dagsettu
27. apríl s.l., segir svo:
„Hér í umdæminu er ekkert fangelsi eða fangaklefar.
Lítið hefir á fangelsisplássum þurft að halda síðan Kópa-
vogur varð sérstakt lögsagnarumdæmi, en þegar þurft
hefir að koma ölóðum mönnum í geymslu, hefir þeim verið
komið til Reykjavíkur og gæzlufangar hafa verið geymd-
ir í hegningarhúsinu í Reykjavík. Afplánun dóma hefir
farið fram á Litla-Hrauni.
Ég tel núverandi ástand viðunandi á meðan við höfum
sama rétt til afnota af framangreindum stofnunum og
hliðstæð yfirvöld í Reykjavík, enda sýnist mér það frá
f járhagslegu sjónarmiði fráleit ráðstöfun að setja upp sér-
stakar þess konar stofnanir hér í umdæminu. Við fram-
tíðaráætlanir í fangelsismálum í Reykjavík tel ég að miða
ætti við, að fullnægt yrði þörfum næsta nágrennis jafn-
framt.“
6. Akranes
Þar er fangahús með fjórum fangaklefum. 1 bréfi, dag-
settu 11. júlí s.l., lýsir bæjarfógetinn því þannig:
„Fangelsið á Akranesi er byggt árið 1940 og var tekið
í notkun í desember þ. á. Það er staðsett ofarlega en þó
nokkuð miðsvæðis í bænum. Allmörg íbúðarhús hafa á
seinni árum verið byggð í námunda við fangahúsið, eitt
þeirra jafnvel aðeins í 2ja—3ja m. fjarlægð frá því. Auð-
sætt er af því m. a., að bæjarstjórnin hér ætlast ekki til
að húsið verði áfram, þar sem það nú er, heldur mun
áform bæjarstj. vera að brjóta hús þetta niður við fyrsta
tækifæri, en byggja í þess stað fangageymslu og lögreglu-
varðstofu saman, svo að lögreglumenn geti haft umsjón
og gæzlu fanga með höndum samhliða varðgæzlu. Þessi
mál eru samt ennþá ekki endanlega ákveðin, annað en það,
að byggja saman fangelsi og varðstofu. Nú er varðstofan
í ráðhúsi bæjarins, sem er um 1 km. fjarlægð frá fanga-
58
Tímarit lögfrœSinga