Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 63
innanhúss tveir litlir fangaklefar, ein stofa til yfirheyrslu
og auk þess salerni og gangur Stærð hússins er 8,5x4,5
m. Kostnaður við byggingu þessa og innanstokksmuni
nam um 135 þús. kr. Húsið er hitað upp með raforku og
að sjálfsögðu raflýst. Húsið er staðsett skammt frá sam-
komustað, en þó ekki þannig, að mikið beri á því. Um
rekstur þessa húss er fátt eitt að segja annað en það, að
ofurölva menn gista þar stöku sinnum og til gæzluvarð-
halds hefir það verið notað við fimm menn. Hefir þá sá
háttur verið hafður á, að vélgæzlumenn í rafstöð, sem er
skammt frá fangahúsinu, hafa starfað sem fangaverðir,
en í öðrum tilfellum hafa menn verið fengnir til þess að
vera næturlangt í fangahúsinu við fangagæzlu. Engin
reynsla er enn fyrir hendi um reksturskostnað. Ekki verð-
ur talið nauðsynlegt að gera sérstakar umbætur á fanga-
húsi þessu, eins og sakir standa, en geta má þó þess, að
lagfæra verður akstursleið að fangahússdyrum."
9. Dalasýsla
Ekkert fangahús.
10. Barðastrandarsýsla
Ekkert fangahús.
11. Isafjörður og IsafjarSarsýslur
1 sýslunum er ekkert fangahús.
Á Isafirði er fangahús með fjórum klefum. 1 bréfi bæj-
arfógetans, dagsettu 29. apríl. s.l., um húsið, segir svo:
„Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1928, og árið 1946
var byggð við það lögregluvarðstofa. Við suðurgafl og
vesturhlið er garður til útivistar með hárri steinsteypu-
girðingu. Húsið er 7x7 m að stærð, hæð 3,3 m. 1 því eru
fangaklefar, salemi og miðstöðvarklefi. Einn klefinn er
ætlaður fyrir gæzlufanga."
Síðan er greind stærð klefanna. Telur bæjarfógeti fang-
elsið „fullnægjandi eins og nú er ástatt."
Tímarit lögfræSinga
61