Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 67
garður verið gerður, en í ráði er að gera hann á næstunni.
Mundi þá skapast skilyrði til að nota einn fangaklefann
fyrir gæzlufanga, en sá klefi er allmiklu stærri en aðrir
klefar í fangageymslunni, og er ætlunin að búa hann þann-
ig út, að hann verði hæfur til þeirra nota.
Segja má, að ekki sé enn að fullu gengið frá fanga-
geymslunni hér, t. d. er enn eftir að fullgera inngang og
tröppur niður í hana. Hefir dómsmálaráðuneytið nú ný-
lega veitt kr. 50.000 til að ljúka við fangageymsluna og
íullgera réttarsal fyrir bæjarfógetaembættið á 2. hæð
hússins.
Þegar gengið hefir verið frá fangageymslunni og inn-
ganginum í hana, svo sem fyrirhugað er, tel ég að hún
muni vera eftir atvikum viðunanleg og fullnægi lágmarks-
kröfum til geymslu ölvaðra manna allt að einum sólar-
hring í senn, en til slíkra nota er fangageymslan fyrst og
fremst ætluð.
Þess skal þó getið, að þegar megnið af síldarflotanum
liggur hér í höfn vegna veðurs og ölvun er almenn, eins
og þá vill jafnan verða, er langt frá því, að fangaklefarnir
séu nægilega margir. Myndi þá ekki veita af a. m. k. 20
klefum til' að geyma í mestu óróaseggina. Þegar slíkt ber
að, neyðist lögreglan hér til að láta lausa þá fanga, sem
viðráðanlegir eru orðnir, eftir nokkra geymslu, til að koma
í þeirra stað í fangaklefana vínóðum mönnum. Er því full
ástæða til að stækka fangageymsluna hér, þótt ekki hafi
enn verið gerðar áætlanir um það.“
17. ólafsfjörður
Ekkert fangahús.
18. Akureyri og Eyjafjarðarsýsla
Á Akureyri er fangahús, þrír einmenningsklefar. Um
það segir bæjarfógetinn í bréfi, dagsettu 30. júní s.l.:
„Lögreglustöð eða lögregluvarðstofa ásamt fanga-
geymslu var byggð hér árið 1939. Húsið er ein hæð, byggt
Tímarit lögfrœöinga
65