Tímarit lögfræðinga - 01.06.1963, Side 27
vel gat komið sér fyrir þá að hafa góða vitnisburði til að
sýna yfirboðurum sínum í Kaupmannahöfn. Lögmenn,
biskupar og sýslumenn tóku upp sið þennan og loks kaup-
menn. Stíluðu þeir vitnisburði sína sjálfir og stóð sjaldn-
ast á svörum.
Nú bar svo við, að Lárus Gottrúp hafði lagt fram tillög-
ur um verzlunarmál, sem sættu andstöðu kaupmanna. Olli
það Gottrúp nokkrum erfiðleikum, að sjálfur var hann
bendlaður við okursölu ekki sízt á tóbaki og áfengi. Sögðu
kaupmenn í svari sínu við tillögum Gottrúps, að honum
mundi sýnna að okra á tóbaki og brennivíni en gefa stjórn-
inni góð ráð í verzlun, enda hefði hann svælt undir sig
eignir manna með okri sínu. Var á þessum tíma algengt,
að háttsettir embættismenn stunduðu margvíslega verzl-
unar og kaupsýslustarfsemi samhliða embættisstörfum
sinum og má sem dæmi nefna Jón Vigfússon, sem biskup
var á Hólum 1674—1690, er nefndur var Bauka-Jón vegna
tóbaksverzlunar sinnar.
Sakir þessara ummæla kaupmanna beiddist Gottrúp
vitnisburða af bændum, sem hann hafði samið og voru
þeir í formi fjögurra spuminga:
1. Hvort Gottrúp hefði viðhaft ólöglegt okur við sölu
á fiski, smjöri, mjöli og annarri matvöru.
2. Hvort hann hefði neytt nokkurn til þess gegn vilja
sínum að taka út ásamt matvörum þessum tóbak, brenni-
vín og aðrar ónauðsynjar?
3. Hvort hann hefði selt brennivín dýrar en fyrirrenn-
arar hans (en þar er átt við Þorleif lögmann Kortsson,
sem mjög fékkst við verzlun)?
Á þingi, sem Sigurður Einarsson lögsagnari Gottrúps
í Húnayatnssýslu hélt, höfðu bændur svarað spurningum
þessum neitandi, en fjórðu spurningunni, sem var almennt
um það, hvernig embættisfærsla Gottrúps hefði verið,
svöruðu bændur þannig, að þeir lofuðu. gott líferni og
starf hins háa lögmanns, svo og alla embættisfærslu hans.
Var svar bændanna fært inn í þingbókina.
Timarit lögfræðinga
73