Tímarit lögfræðinga - 01.06.1963, Side 45
1. Að hann haft og meðhöndlað hafi óleyfilega fjöl
kynngiskonst.
2. Að tilreynt hafi með sömu konstum kotruvers.
3. Að vita, hvort ein kvenpersóna væri óspilt mey eður
ekki.
4. Að hann fyrir sömu fjölkynngiskonstar meðferð
forskuldað hafi eftir Guðs réttferðugum dómi tímanlegt
straff, hvert hann og meðtók þann 6. jiilí“, eins og bókun
í Alþingisbók lýkur, en þetta var árið 1681.
Dómsniðurstaða nefndardómara (Embedsskrivelser Nr.
91) var sú, að líkindi þau, sem fram hefðu komið til Al-
þingis árið 1681 væru ekki þess eðlis, að þar fyrir ætti
tylftareiður að koma. I annan stað hefði aðeins átt að refsa
Ara Pálssyni með útlegð, jafnvel þótt sannprófaður hefði
verið þeirri galdrabrúkun, sem hann undir sinn dauða
játað hefði. Væri þvi nefndur Alþingisdómur óréttur og
ekki á lögum byggður og Ari Pálsson á móti réttum lög-
um af lífi tekinn. Sigurður Björnsson ætti því fyrir þennan
órétta dóm að hafa forbrotið allt sitt lausagóss til konungs-
ins.
I vörn sinni fyrir yfirrétti (Embedsskrivelser Nr. 121),
fara þeir nefndarmenn mjög hörðum orðum um meðferð
máls þessa alla, og hefur þegar verið vikið að ýmsu i um-
mælum þeirra. Draga þeir saman skoðanir sínar í eftir-
farandi kafla:
„Þegar menn nú til samans íhuga þennan dauðadóm og
þau fundament, uppá hver hann er byggður, þá mun hann
varla kunna afsakaður að verða. Með framanskrifuðu ex-
tracti úr héraðs þrósessimum, ásamt því, sem við þar hjá
í ýmsum stöðum noterað höfum, meinum við okkur á-
nægjanlega sýnt að hafa, af hversu veikum grundvelli
þetta mál frá öndverðu risið hefur, og með hvaða mis-
smíðum nefndir héraðsprósessar gjörðir eru. Upphöf máls-
ins eru nokkrir ráðleysu áburðir úti óvissu án nokkurra
eftirtakanlegra skjala eður likinda. Til líkinda brúkast
ómerkilegir framburðir ýmissa, sem i sjálfu sér ekkert
Tímarit lögfræðinga
91