Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1963, Page 34

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1963, Page 34
Sá grunur lá sem sagt á, að þeir Jón Hreggviðsson og Sigurður Björnsson hefðu um það samið, að Jón styngi hæstaréttarstefnunni í máli því, sem hann hafði verið dæmdur til dauða í, undir stól gegn því að lögmaður hreyfði i engu við honum. Dómur var kveðinn upp 28. júli 1708 (Embedsskrivelser Nr. 89). Er niðurstaða sú, að Alþingisbók 1686 vitni berlega um lofun Jóns Hreggviðssonar við lögmanninn Sigurð Björns- son. Hafi lögmaður ekkert fram borið sér til afsökunar. Með samningi þessum hafi hann brotið gegn Lönguréttar- bót frá 1450 og öðru konunglegu lögmáli, sem fyrirbjóði, að útlægir menn gangi um án þess að þeim verði refsað. Nú greini íslenzk lög ekki skilmerkilega, hver refsing eigi að liggja við slíkri háttsemi og beri því skv. tilskipun Frið- riks 2.,10) að dæma um hana eftir dönskum lögum. Var niðurstaðan sú, að Sigurður Björnsson skyldi hafa for- brotið sínu embætti og ekki framar lögmaður vera, en niðurstaða þessi studd við tilskipun eina danska frá 21. sept. 1695. 1 málinu kom einnig fram fölsuð uppskrift af griðabréfi Jóns Hreggviðssonar og var lögmanni gert að skýra, hvernig á því stæði. Sjálfum var Jóni fyrirlagt að afla sér þegar stefnu í morðmáli þessu og framfylgja síðan málinu eftir nefndum lögum og fara framvegis eftir þeim verndarbréfum, sem honum hefðu verið fengin. Dómi þessum áfrýjaði Sigurður Björnsson til yfirréttar- ins og þeir Árni og Páll rituðu vöm fyrir dómi sínum, en altítt var, að dómarar létu slíka vörn fylgja dómum sín- um, sem áfrýjað var. (Vöm þeirra er í Embedsskrivelser Nr. 120). Um það atriði, hvort þeir Sigurður og Jón Hreggviðsson hefðu gert samning um að stinga hæstaréttarstefnunni 19) Hér er átt við Tilskipun frá 20. marz 1563 (Forordning om Afgjörelsen af de Tilfælde, som ikke omtales i Islands Lov). Lovs f. Isl. I., bls. 79—80. 80 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.