Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Blaðsíða 33
mönnum. Þeir aðstoða dómara við öflun gagna fyrir málflutning, útbúa dóma-
skrár um afmörkuð efni, auk margra annarra starfa.
Tvær skrifstofustúlkur starfa við réttinn við vægast sagt mjög bágbornar ytri
aðstæður, sem reyndar á við um allt starfsfólk réttarins.
Þá er dómvörðurinn einn óupptalinn, en starf hans hefur einnig aukist mjög,
sérstaklega þegar flutt eru fleiri en eitt mál í einu.
VIII.
Hæstiréttur er fastheldinn á gamla siði. Svo er einnig um æðstu dómstóla
annarra þjóða. Sá siður er t.d. hér og víða um lönd, að dómarar í Hæstarétti
byrja daginn með því að heilsast með handabandi. Mörgum nýjum dómara
hefur þótt það full hátíðlegt að heilsast svona á hverjum morgni. En þetta á
sínar skýringar. Með handabandinu eru dómaramir að staðfesta það, að allur
ágreiningur og sárindi, sem uppi kunna að hafa verið deginum áður, séu nú
gleymd og grafin, þannig að unnt sé að hefja störf dagsins með opnum huga.
Dómaramir ganga einnig niður í dómsalinn og setjast í sæti sín í ákveðinni
röð. Fremstur fer forseti dómsins og sest í sæti fyrir miðju dómsins. Sitji
hann ekki í dómi, þá fer varaforseti fremstur, en ef hann er heldur ekki í
dóminum, þá sá dómari, sem lengstan starfsaldur hefur. Síðan koma dóm-
aramir eftir starfsaldri, þannig að sá, sem lengstan starfsaldur hefur, sest hægra
megin við forseta, sá, sem næstlengstan starfsaldur hefur, sest vinstra megin
við forseta, og svo koll af kolli, þannig að yngsti dómarinn situr jafnan lengst
til vinstri við forseta. Málflutningsmenn og aðrir, sem hlusta á málflutning
fyrir Hæstarétti, hafa tekið eftir því, að dómaramir virðast krota mikið í
ágripin. Flestir dómarar hafa það fyrir reglu að strika undir það, sem lögmenn
lesa úr ágripi eða leggja áherslu á, og er þá sérstakur litur notaður fyrir hvom
eða hvern lögmann. Þegar margir lögmenn eru í máli, er mikið um litadýrð
í ágripinu. Þessi undirstrikun með sérstökum lit fyrir hvem lögmann er til
mikils hægðarauka, þegar dómarar eru að vinna í málinu að málflutningi
loknum.
IX.
Hæstiréttur íslands er mjög sérstakur vinnustaður. Dómaramir takast á við
öll helstu vandamál, sem upp koma í þjóðfélaginu. Það hefur mikið andlegt
álag í för með sér og er mikils um vert, að dómaramir haldi ró sinni og jafn-
aðargeði. Samvinna þeirra er náin, og er nauðsynlegt, að tillitssemi og góður
andi ríki á vinnustaðnum en ekki sundurlyndi. Hæstiréttur er ein mikilvægasta
stofnun íslensks þjóðfélags, og það er mikið undir honum komið, hvort tekst
að halda hér uppi mannsæmandi þjóðfélagi. Það er ósk mín á þessum tíma-
mótum í sögu Hæstaréttar, að honum takist að halda vörð um þetta hlutverk
sitt í framtíðinni.
27