Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Blaðsíða 103
að forsendur skyldu fylgja ályktarorði í fógeta-, skipta- og uppboðsmálum ef
úrskurður fæli í sér lokaákvörðun dómara um ágreiningsefnið.
Hæstaréttardómar 1990, bls. 2.
Dómurinn er reifaður í kafla 7.3 hér að framan.
Hann varð til þess að sett voru bráðabirgðalög nr. 1/1990 um viðauka við
lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o. fl., nr. 74 27.
aprfl 1972 þar sem sérstakir héraðsdómarar voru skipaðir til 30. júní 1992 í
tuttugu umdæmum sýslumanna, bæjarfógeta og lögreglustjóra landsins svo
sem nánar er mælt í 1. gr. laganna. Bráðabirgðalög þessi voru síðan staðfest
með lögum nr. 27/1990.
9. VAXANDI GILDI FORDÆMA
Hin síðari ár hafa mál þróazt þannig að fordæmi hafa orðið sífellt fyrir-
ferðarmeiri og mikilvægari sem réttarheimild og liggja til þess margar ástæður.
Fyrst má nefna að fordæmi eru miklu aðgengilegri en áður var. Dómar eru
birtir og útgáfum fylgja skrár af ýmsu tagi sem auðveldar mjög leit. Tölvu-
tæknin hefur og verið tekin í þjónustu upplýsingamiðlunar og verður það til
enn frekara léttis.
í annan stað eiga áhrif engilsaxnesks réttar á kostnað meginlandsréttarins,
einkum þýzks réttar, vafalaust einhvem þátt í því að fordæmum er meiri gaumur
gefinn en áður. Má þó vera að hluti breytingar þessarar sé ekki annar en sá að
hlutur fordæma í mótun réttarins sé nú viðurkenndur af meiri hreinskilni en áður.
Loks veldur einhverju um að löggjafanum hefur ekki tekizt sem skyldi að
fylgja eftir ömm þjóðfélagsbreytingum, þannig að löggjöfm hefur orðið á eftir
þróuninni. Viðfangsefnin hafa orðið flóknari og sífellt örðugra hefur reynzt
að taka á þeim með almennum fyrirmælum í lögum. Má sem dæmi nefna
fjölmargt sem lýtur að neytendavemd, höfundarrétti, friðhelgi einkalífs og um-
hverfisvernd, en á öllum þessum sviðum er oftast tekizt á um mikla hagsmuni.
Afleiðingin hefur orðið sú að ekki hefur verið tekið á vandanum í löggjöfinni
og hún einkennzt sífellt meira af almennt orðuðum vísireglum. Með því hefur
ákvörðunarvaldi verið vísað til dómstólanna og vald framselt til þeirra.36
Má eindregið ætla að hlutur þeirra í löggjöfínni fari vaxandi. Hér á landi
eru fordæmi sennilega mikilvægari réttarheimild en í rétti annarra Norður-
landa. Það á vafalaust rót að rekja til þess að minna hefur kveðið að endur-
skoðun löggjafar hér en í nágrannalöndunum og veldur mannfæð vafalaust
einhverju um.
36 Stig Strömholm: Ratt, rattskallor och rattstillampning. P A Nordstedt & Söners förlag. Sth. 1981,
bls. 333.
97