Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Page 91

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Page 91
nýju. Fulltrúinn sem kvað upp dóminn starfaði á ábyrgð sýslumannsins í Árnessýslu. Lögreglan í Ámessýslu rannsakaði málið, en fulltrúinn sem kvað upp dóminn hafði þau ein afskipti af málinu að hann sendi málið til fyrirsagnar ríkissaksóknara. I dómi Hæstaréttar var fyrst tekið fram að það hefði lengi tíðkazt hér á landi að sami maður hefði með höndum umboðs- og dómstörf í héraði þó að svo hafi ekki verið um langt skeið í Reykjavík og nokkur breyting orðið á sumum öðrum stöðum. Vitnað var í framangreinda dóma Hæstaréttar þar sem þessi skipan var talin standast ákvæði stjómarskrár. Sögulegar og landfræðilegar ástæður liggi til þessarar skipunar mála, en þetta samrýmist illa viðhorfum í ríkjum sem um annað byggja á svipuðum réttarhugmyndum og Island. í 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. auglýsingu nr. 11/1954 segi þetta: „Nú leikur vafi á um réttindi þegns og skyldur eða hann er borinn sökum um glæp- samlegt athæfi, og skal hann þá njóta réttlátrar opinberrar rannsóknar innan hæfilegs tíma fyrir óháðum, óhlutdrægum, lögmæltum dómstóli Ljóst sé að við full- gildingu sáttmálans hafi ríkisstjórn talið íslenzkar réttarreglur í samræmi við hann eins og sáttmálinn hafi þá verið skýrður; síðan hafi mörg ákvæði hans verið nánar skýrð. Með fullgildingunni hafi Island að þjóðarétti gengizt undir að hlíta ákvæðum sáttmálans. Með lögum nr. 92/1989 um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði hafi sú stefna verið tekin að sömu menn skuli ekki fara með þessa tvo þætti ríkisvaldsins. Síðan sagði þetta í dómi Hæstaréttar: „í málinu er á þetta að líta: í stjómarskrá lýðveldisins er byggt á þeirri meginreglu, að ríkisvaldið sé þríþætt og að sérstakir dómarar fari með dómsvaldið. Þær sérstöku sögulegu og landfræðilegu aðstæður, sem bjuggu því að baki, að sömu menn fara utan Reykjavíkur oftsinnis bæði með stjómsýslu og dómstörf, hafa nú minni þýðingu en fyrr, meðal annars vegna greiðari samgangna en áður var. Alþingi hefur sett lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, sem taka eiga gildi 1. júlí 1992. Island hefur að þjóðarétti skuldbundið sig til að virða mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindanefnd Evrópu hefur einróma ályktað, að málsmeðferðin í máli [J] hafi ekki verið í samræmi við 6. gr. 1. mgr. mannréttindasáttmálans, [sbr. reifan hæsta- réttardóms 1985, bls. 1290, hér á undan]. Ríkisstjóm íslands hefur, eftir að fyrrgreindu máli var skotið til Mannréttindadóm- stóls Evrópu, gert sátt við J [...], svo og annan mann sem kært hefur svipað málefni með þeim hætti sem lýst hefur verið. í 36. gr. 7. tl. laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraði segir meðal annars, að dómari skuli víkja úr dómarasæti, ef hætta er á því, „að hann fái ekki litið óhlut- drægt á málavöxtu“. Þessu ákvæði ber einnig að beita um opinber mál samkvæmt 15. gr. 2. mgr. laga nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála. í máli þessu er ekkert fram komið, sem bendir til þess, að dómarafulltrúinn, sem kvað upp héraðsdóminn, hafi litið hlutdrægt á málavöxtu. Hins vegar verður að fallast á það með Mannréttindanefnd Evrópu, að almennt verði ekki talin næg trygg- ing fyrir óhlutdrægni í dómstörfum, þegar sami maður vinnur bæði að þeim og lög- reglustjóm. Með tilliti til þess, sem rakið hefur verið, ber nú að skýra fyrrgreind lagaákvæði þannig, að sýslumanninum í Ámessýslu og fulltrúa hans, sem kvað upp héraðs- 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.