Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 27
ógjaldfæmi gerðarþola. Einnig getur fjámám verið ófullnægjandi sönnunar-
gagn í þessu efni þótt fjámáminu hafi réttilega verið lokið án árangurs. Hér má
nefna að yfirlýsing um eignaleysi við fjámám gæti verið ótrúverðug eða gefin
af manni sem ekki hefur næga yfirsýn yfir efnahag gerðarþola.35 Enn fremur
gæti árangurslaust fjámám verið ófullnægjandi sökum þess að langur tími hefur
liðið frá því að gerðin fór fram.36 Tæplega verður fullyrt hve langur tími þarf
að líða svo að sönnunargildi fjámáms verði með réttu dregið í efa en væntan-
lega koma ár fremur til álita en mánuðir. Þetta getur einnig ráðist af nánari
atvikum hverju sinni, svo sem breyttum aðstæðum aðalskuldara eftir að gerðin
fór fram.
Þegar fjámámi hefur lokið sem árangurslausu, án þess þó að það eitt og sér
geti talist viðhlítandi sönnun fyrir ógjaldfæmi aðalskuldara, getur það ásamt
öðmm gögnum talist fullnægjandi sönnun þegar á heildina er litið. Þannig
kynni árangurslaust fjámám sem fram fór hjá aðalskuldara fyrir all löngu, ásamt
síðari gögnum um efnahag hans, að teljast lögfull sönnun um ógjaldfæmi svo
greiðsluskylda ábyrgðarmanns verði virk.
3.3.3.3 Gjaldþrotaskipti á búi aðalskuldara
Greiðsluskylda ábyrgðarmanns getur orðið virk við gjaldþrotaskipti á búi
aðalskuldara. Þá reynir á það álitaefni hvenær greiðsluskylda verður virk en
áhorfsmál er hvaða tímamark leggja verður til gmndvallar. I þeim efnum getur
valið staðið á milli upphafs skiptanna annars vegar þannig að greiðsluskyldan
verði virk þegar við töku bús aðalskuldara til gjaldþotaskipta eða þegar skiptum
hefur verið lokið hins vegar og kröfuhafi fengið þá fullnustu sem til hrekkur af
eignum búsins. Einnig getur komið til álita tímamarkið þama á milli þannig að
greiðsluskyldan verði virk undir skiptameðferð á búi aðalskuldara. Aður en
þetta verður tekið til umræðu skal þess þó getið að gjaldþrotaskipti á búi aðal-
skuldara ráða vitanlega engu um greiðsluskyldu ábyrgðarmanns ef hún var
þegar orðin virk af þeim sökum að kröfuhafi hefur fyrir upphaf skipta tryggt sér
viðhlítandi sönnun þess að engin fullnusta verði fengin hjá aðalskuldara.
Hafi gjaldþrotaskiptum á búi aðalskuldara lokið með úthlutun til lánardrottna
leikur enginn vafi á að ^reiðsluskylda ábyrgðarmanns vegna eftirstöðva
skuldarinnar er orðin virk. I því sambandi skiptir engu þótt skiptum hafi lokið
án þess að öllum réttindum búsins hafi verið ráðstafað og skiptin kunni síðar að
35 Þetta svipar nokkuð til þeirra skilyrða sem gilda þegar bú skuldara er tekið til gjaldþrotaskipta
að kröfu lánardrottins samkvæmt 1. tl. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., en
þar er gerður sá áskilnaður að ekki sé ástæða til að ætla að árangurslaus gerð geft ranga mynd af
fjárhag skuldara. Þó verður að gæta varfæmi við að draga ályktanir af úrlausnum á því sviði þegar
af þeirri ástæðu að ekki eru gerðar sömu kröfur til ógjaldfæmi skuldara þegar bú hans er tekið til
gjaldþrotaskipta, svo sem áður er lauslega vikið að í kafla 3.3.2. Þá verður einnig að taka tillit til
þess að gjaldþrotaskipti á búi skuldara em almennt viðurhlutameiri fyrir hann en fyrir ábyrgðar-
mann að þurfa að þola að greiðsluskylda samkvæmt einfaldri ábyrgð verði virk.
36 Carsten Smith: Garantirett I, bls. 170, Garantirett III, bls. 254 og Kausjonsrett, bls. 89.
21