Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Síða 35

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Síða 35
Þegar ábyrgðarmaður samkvæmt gagnábyrgð hefur fullnægt skuldbindingu sinni gagnvart aðalábyrgðarmanni öðlast hann endurkröfu á hendur aðalskuld- ara eftir almennum reglum og eignast þau réttindi sem aðalábyrgðarmaður nýt- ur. Tekur það bæði til tryggingarréttinda sem aðalábyrgðarmaður hefði getað gengið að og endurkröfu sem hann getur öðlast á hendur öðrum ábyrgðar- manni.53 4. ÁBYRGÐARKRAFAN 4.1 Almennt Andlag kröfuábyrgðar er sú krafa á hendur aðalskuldara sem ábyrgðarmaður hefur gengist í ábyrgð fyrir. Þessa skuldbindingu aðalskuldara verður því að tilgreina í ábyrgðaryfirlýsingu. Vafi getur leikið á hvaða kröfur eru tryggðar með ábyrgð en þegar hefur verið rætt um túlkun kröfuábyrgðar.54 Kröfu- ábyrgðir geta verið með ýmsu móti og verður hér gerð grein fyrir helstu tilvik- um sem koma til álita. Ábyrgð getur lotið að einni eða fleiri kröfum sem þegar eru fyrir hendi eða stofnast samhliða því að ábyrgðarmaður skuldbindur sig gagnvart kröfuhafa. Einnig getur ábyrgð verið viðvarandi í þeirri merkingu að hún taki til þeirra krafna á hendur aðalskuldara sem kunna að stofnast síðar og jafnvel þannig að undir hana falli að auki þær kröfur sem þegar eru fyrir hendi. Þessu má nánar lýsa þannig að skuldbinding ábyrgðarmanns með tíðkanlegri áritun á skuldabréf er bundin við kröfu samkvæmt bréfinu. Ábyrgð hans fellur því endanlega niður við greiðslu í samræmi við efni bréfsins. Þegar ábyrgðarmaður gengst aftur á móti í ábyrgð gagnvart lánastofnun vegna hlaupareiknings aðalskuldara getur 53 Hans Viggo Godsk Pedersen: Kaution, bls. 36-37; Hans Verner Hojrup: Kaution, bls. 15; H. Krag Jespersen: Kaution, bls. 66-67; Henry Ussing: Kaution, bls. 377-379. 54 Á þetta álitaefni reyndi í H 1996 1422 en þar voru málsatvik þau að M gekkst í ábyrgð 15. apríl 1992 fyrir greiðslu leigu samkvæmt fjármögnunarleigusamningi gerðum sama dag milli Lindar hf. og G um hópferðabifreið. Sagði í ábyrgðaryfirlýsingunni að samningurinn væri gerður til 60 mánaða og að ábyrgð M næði til þeirra viðauka og skuldbreytinga sem á samningnum kynnu að verða. Samningur um leigu á bifreiðinni var gerður 15. maí 1992 milli Lindar hf. og G. Hinn 4. maí 1993 gerðu sömu aðilar síðan nýjan samning um sömu bifreið með hærri fjárhæð og öðru greiðslu- tímabili. Báðir samningamir voru ritaðir á samskonar eyðublað Lindar hf. og báru sama númer en á þeim síðari stóð orðið „skuldbreyting“ neðan við fyrirsögn og númer samnings. I báðum samningunum var vísað til ábyrgðar M sem tryggingar fyrir efndum G en hvorugur þeirra bar þess merki að hafa verið kynntur M. I dómi Hæstaréttar sagði að efni skjalsins frá 4. maí 1993 bæri ekki með sér slík tengsi við upphaflega samninginn að það gæti eingöngu talist fela í sér breytingu greiðsluskilmála. Þannig hefði í yngra skjalinu verið lýst til fullnaðar skilmálum um leigu þar- greindrar bifreiðar líkt og enginn samningur hefði áður verið gerður um sama efni. Að auki hefði leigugjald verið talsvert hærra samkvæmt skjalinu frá 4. maí 1993 en í upphaflegum samningi og leigutími skemmri. Var talið að kröfuhafi hefði ekki gefíð viðhlítandi skýringar á tengslum þessara breytinga við upphaflega samninginn. Þegar þessa var gætt þótti verða að lfta á ráðstöfun G og Lindar hf. frá 4. maí 1993 sem nýjan leigusamning. Skuldbinding M var ekki talin fela í sér svo óyggjandi væri ábyrgð á skuldbindingum G samkvæmt nýjum samningi þótt gerður væri um sama hlut. Var einnig talið að kröfuhafi gæti ekki reist kröfu á hendur M samkvæmt upphaflega samningnum þar sem hann væri fallinn niður með seinni samningi Lindar hf. og G. 29

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.