Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2000, Blaðsíða 38
Þegar ábyrgðarmaður hefur gengist undir alábyrgð eða aðra víðtæka ábyrgð- arskuldbindingu hefur almennt verið talið að hún sæti þröngri túlkun. Þannig verður að ætla að ábyrgð taki ekki til krafna á hendur aðalskuldara sem gagn- gert hafa verið framseldar kröfuhafa í því skyni að fella þær undir skuldbind- ingu ábyrgðarmanns. Það sama á við ef ekki var unnt að gera ráð fyrir að krafa félli undir ábyrgð, svo sem ef tilviljun ein ræður því að banki, sem af öðru til- efni hefur víðtæka ábyrgð, leysir til sín kröfu á hendur aðalskuldara. Verður síð- ur talið koma til álita að óvenjulegar og ófyrirsjáanlegar kröfur á hendur aðal- skuldara falli undir skuldbindingu ábyrgðarmanns. Einnig getur verið að víðtæk ábyrgð hafi gagngert verið veitt vegna tiltekinna lögskipta kröfuhafa og aðal- skuldara. Þá kemur til greina að ábyrgðin verði talin bundin við þau lögskipti og taki þannig ekki til krafna sem standa utan þeirra.60 Með hliðsjón af dóma- framkvæmd verður einnig að gera ráð fyrir enn frekari takmörkunum en hér hafa verið raktar. í þeim efnum þykir ástæða til að hafa til hliðsjónar eftirfarandi dóma sem að vísu varða tryggingar í öðru formi en kröfuábyrgð. H 1995 2445 Með tryggingarbréfi útgefnu af Álafossi hf. fékk Verzlunarbanki Islands hf. að handveði innistæðu á reikningi í bankanum. Handveðið var sett til tryggingar vegna ábyrgðar bankans á greiðslum samkvæmt kaupleigusamningi Ála- foss hf. við tiltekið fjármálafyrirtæki. Samkvæmt prentuðum skilmálum tryggingar- bréfsins átti handveðrétturinn að auki að ná til annarra skulda sem Álafoss hf. stæði þá eða síðar í við Verzlunarbankann. I kjölfar þess að bú Álafoss hf. var tekið til gjaldþrotaskipta var hluta af innistæðu á reikningnum ráðstafað til að greiða að fullu skuldir samkvæmt kaupleigusamningnum. Um eftirstöðvar á reikningnum deildu síðan þrotabú Álafoss hf. og íslandsbanki hf. sem tekið hafði við allri bankastarfsemi Verzlunarbankans og þriggja annarra banka. I dómi Hæstaréttar sagði svo: „Eigi verður talið, að framangreindur handveðsréttur hafi við þessa sameiningu bankanna færst yfir á aðrar skuldbindingar, sem útgefandi tryggingarbréfsins kynni þá eða fram að sameiningu bankanna að hafa gengist undir gagnvart öðrum þessara banka en Verzlunarbanka Islands hf. Forsendur handveðsins voru viðskipti Álafoss hf. í Mosfellshreppi við Verzlunarbankann, eins og þeim var lýst í tryggingarbréfinu. Hinn nýi banki gat ekki öðlast rýmri rétt en hver bankanna um sig hafði gagnvart viðskiptamönnum sínum, og því gat efnislegt umfang hand- veðsins ekki aukist við sameininguna, án þess að annað kæmi til. Handveðsrétturinn féll því úr gildi við uppgjör kaupleigusamningsins ..., enda var þá engum öðrum viðskiptum til að dreifa milli Álafoss hf. og Verzlunarbanka íslands hf.“ H 1996 3267 A gaf út víxil til tryggingar á skuldum G vegna viðskipta hans með greiðslukort frá Kreditkorti hf. Var víxillinn óútfylltur að því er varðaði útgáfudag, gjalddaga og fjárhæð. Greiðslufall varð af hálfu G og því var víxillinn fylltur út með fjárhæð sem svaraði til þeirra vanskila. A greiddi síðan víxilskuldina með rúmum 3,3 60 Hans Viggo Godsk Pedersen: Kaution, bls. 39-42; Lennart Lynge Andersen og Erik Werlauff: Kreditretten, bls. 267-270; Bcrnhard Gomard: Obligationsret, 4. del, bls. 31; Henry Ussing: Kaution, bls. 39, neðanmálsgrein 7; Carsten Smith: Garantirett III, bls. 213-217 og Kausjonsrett, bls. 73. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.