Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Page 8

Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Page 8
8.2 Nýjar alþjóðlegar kæruleiðir vegna brota á samningsákvæðum 8.3 Rýmkuð skilgreining réttinda og skyldna að einkamálarétti í skilningi 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu 9. ÞRÓUN í INNANLANDSRÉTTI AÐILDARRÍKJA AÐ MANNRÉTT- INDASAMNINGUM 9.1 Stjórnarskrárbreytingar í Evrópuríkjum 9.2 Lögfesting Mannréttindasáttmála Evrópu og annarra alþjóðlegra mannréttindasamninga á Norðurlöndum 9.3 Vernd efnahagslegra og félagslegra réttinda í úrlausnum dómstóla 10. ÁLYKTANIR AL NYLEGUM DÓMUM UM ÞRÓUN ÍSLENSKS RÉTTAR 10.1 Skylda stjórnvalda til athafna er ekki bundin við efnahagsleg og félagsleg réttindi. 10.2 Vemd efnahagslegra og félagslegra réttinda felst í að takmarka skerðingu á lágmarksréttindum sem þegar eru tryggð með lögum 10.3 Vemd efnahagslegra og félagslegra réttinda fyrir milligöngu jafnræð- isreglunnar 11. NIÐURSTÖÐUR 1. INNGANGUR Efnahagsleg og félagsleg mannréttindi hafa fengið tiltölulega litla athygli á vettvangi lögfræðinnar hér á landi. Þrátt fyrir að ákveðin réttindi af þessum meiði hafi verið í stjórnarskránni um langt skeið hafa þau lítið sem ekkert kom- ið til skoðunar hjá dómstólum fyrr en á síðustu árum. Nýlegar ákvarðanir dóm- stóla um inntak þessara réttinda og hvernig beri að tryggja þau hafa vakið sterk viðbrögð, einkum dómur Hæstaréttar frá 19. desember 2000 í máli Öryrkja- bandalags íslands gegn ríkinu. Spruttu af því lögfræðilegar rökræður um eðli efnahagslegra og félagslegra réttinda og hvort þeim verði beitt sem lagalegum réttindum en ekki síður hvöss stjómmálaumræða og skiptar skoðanir um mörk dómsvalds og löggjafarvalds. Hér á eftir verður leitast við að varpa ljósi á það hvaða mannréttindi eru efna- hagsleg og félagsleg og hvert er eðli þeirra. Lýst verður stöðu þeirra og uppruna í íslensku stjórnarskránni með sérstakri áherslu á 1. mgr. 76. gr. hennar sem var sérstaklega til skoðunar í fyrrgreindum dómi Hæstaréttar. I ljósi þeirra sterku tengsla sem þetta stjórnarskrárákvæði hefur nú við alþjóðlega mannréttinda- samninga um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi verður gerð grein fyrir helstu samningum af þessu tagi og efnisákvæðum þeirra. Einnig er mikil- vægt að huga að því hver hefur orðið framgangur þessara réttinda í meðförum alþjóðlegra nefnda og dómstóla sem gegna eftirlitshlutverki með því að ríki uppfylli samningsskuldbindingar sínar og hvaða lærdóma má draga af því. Loks verður reynt að spá fyrir um hver verði þróun í beitingu dómstóla á þess- um réttindum hér á landi miðað við nýlega dóma. með hliðsjón af alþjóðlegri þróun og reynslu í öðrurn ríkjum. 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.