Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 62
Þann 26. apríl 2000 kl. 20.30 var lialdinn í Odda fundur um frumvarp til laga
um persónuvemd og meðferð persónuupplýsinga og helstu breytingar frá gild-
andi rétti samkvæmt lögum nr. 121/1989. Framsögumenn voru Páll Hreinsson,
prófessor og formaður tölvunefndar, og Sigrún Jóhannesdóttir, framkvæmda-
stjóri tölvunefndar. Fundarmenn voru 64 talsins.
Þann 18. maí 2000 var haldinn á Hótel Sögu morgunverðarfundur urn fram-
kvæmd stjórnsýslulaga og löggjafar um starfsmenn hins opinbera - álitamál í
ljósi nýlegra álita umboðsmanns Alþingis. Frummælendur voru Tryggvi Gunn-
arsson, umboðsmaður Alþingis, og Ásmundur Helgason, lögfræðingur hjá
umboðsmanni Alþingis. Á fundinum var jafnframt kynnt ný heimasíða
umboðsmanns Alþingis. Þátttakendur á fundinum voru 65 að tölu.
Þann 25. september 2000 kl. 20.30 var haldinn í Odda fundur um ísland og
Schengensamstarfið. Frummælandi var Högni S. Kristjánsson, lögfræðingur og
sendiráðunautur í utanríkisráðuneyti. Hann gerði ítarlega grein fyrir því hvað
fælist í skuldbindingum Schengen-samkomulagsins og miklar umræður spunn-
ust um ýmsar hliðar þess máls. Fundarmenn voru 26 talsins.
Þann 6. október 2000 var árlegt málþing lögfræðingafélagsins haldið á
Grand Hótel, Reykjavík. Að þessu sinni var umfjöllunarefnið lögfræðileg álita-
efni í tengslum við stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra setti málþingið en málþingsstjóri var Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneyt-
isstjóri. Frummælendur voru Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis,
sem fjallaði um stjórnsýsluna, hlutverk og kröfur, Páll Hreinsson prófessor
nefndi fyrirlestur sinn „Handverk stjórnsýslunnar“, Ólafur Jóhannes Einarsson
lögfræðingur fjallaði um andmælareglu stjórnsýsluréttar í ljósi nýrra dóma,
Birgir Tjörvi Pétursson lögfræðingur flutti fyrirlestur um ólögfest verkefni
sveitarfélaga og Kristján Andri Stefánsson deildarstjóri fjallaði um lögmætis-
regluna og þjónustugjöld. Þátttakendur voru um 250 talsins og var þingið hið
næstfjölmennasta í sögu félagsins. Fjölmennast var málþing haldið árið 1991
um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði sem 325 lögfræðingar sóttu.
4. Móttaka fyrir nýútskrifaða lögfræðinga
Að venju var nýútskrifuðum lögfræðingum boðið til móttöku á vegum
stjómar félagsins í því skyni að kynna þeim starfsemi félagsins. Móttakan fór
fram þann 31. maí 2000 í Borgartúni 6 og mættu rúmlega 30 manns til hennar.
í móttökunni gerði formaður félagsins m.a. grein fyrir því nýmæli að öllum
nýútskrifuðum lögfræðingum er nú boðin eins árs áskrift að Tímariti lögfræð-
inga þeint að endurgjaldslausu. Með þeim hætti vill félagið kynna ungum lög-
fræðingum efni tímaritsins og vekja athygli á gildi þess fyrir starfandi lögfræð-
inga.
130