Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Page 64
sín. Stjórn Lögfræðingafélags íslands hefur haft til umfjöllunar að auka sam-
starf við lagadeild og Hollvinafélag lagadeildar, m.a. að komið verði á föstum
samráðsvettvangi þessara aðila og annarra félaga sem starfa að fræðslu og hags-
munamálum lögfræðinga.
8. Samstarfssamningur við Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands
Lögfræðingafélag Islands hefur ásamt Lögmannafélagi Islands og Dómara-
félagi Islands unnið að gerð samstarfssamnings um skipulagningu og fram-
kvæmd endurmenntunarnámskeiða á sviði lögfræði. Felur samningurinn m.a. í
sér að félögin taki mjög virkan þátt í tillögugerð og undirbúningi og mótun
námskeiða hjá endurmenntunarstofnuninni og fái jafnframt hlutfallslegt endur-
gjald af þátttökugjaldi fyrir hvern þátttakanda. Er hér um að ræða gott dæmi um
samstarf félaga lögfræðinga sem stefna ber að að auka enn í náinni framtíð.
9. Fræðaferð til Moskvu undirbúin
A starfsárinu hefur stjóm félagsins undirbúið fræðaferð til Moskvu en vegna
mikillar þátttöku í fyrri ferðum sem félagið hefur staðið fyrir á erlenda grund,
þ.e. til Washington DC og Kína, hefur sú hefð skapast að fara fræðaferð út fyr-
ir landsteinana annað hvort ár. Fyrirhugað er að fara til Moskvu í maímánuði
árið 2001 og að heinrsækja þar nr.a. Dúmuna, hæstarétt, háskóla og lögmanns-
stofu. Benedikt Bogason hefur haft veg og vanda af undirbúningi ferðarinnar í
samvinnu við Jóhann R. Benediktsson og Brynhildi Flóvenz. Ferðin er skipu-
lögð í samráði við sendiherra Islands í Moskvu.
10. Lokaorð
Svo sem skýrsla félagsins ber með sér hefur starfsemi lögfræðingafélagsins
verið blómleg síðastliðið starfsár og það er ánægjuefni að málþing félagsins og
margir fræðafundir voru betur sóttir en verið hefur um margra ára skeið. Er þá
ekki tekið tillit til þeirra fjölmörgu lögfræðinga sem sótt hafa námskeið á vett-
vangi lögfræði sem skipulögð hafa verið í samstarfi við Endurmenntunarstofn-
un Háskóla Islands. Það hlýtur að vera meginhlutverk félagsins að bjóða
fræðsluefni sem höfðar til sem flestra félagsmanna og jafnframt að taka til
umfjöllunar nýmæli í íslenskum rétti og þróun réttarins.
F. h. stjórnar Lögfræðingafélags íslands,
Ragnhildur Arnljótsdóttir formaður
132