Tímarit lögfræðinga - 01.05.2001, Side 68
Rannsóknir:
Rannsóknir á sviði alþjóðlegs hafréttar. Jafnframt rannsóknir á reynslunni af
aðild Islands að hinu Evrópska efnahagssvæði - EES og framtíðarhorfum á
þeim vettvangi.
Jónatan Þórmundsson
Ritstörf:
Grundvallaratriði alþjóðlegs refsiréttar. Afmælisrit Úlfljóts 50 ára, 1. tbl.
1997, bls. 151-180.
Ritstjórn:
I ritstjórn Nordisk Tidsskrift for Kriminalvidenskab.
I ritstjórn Scandinavian Studies in Law.
Fyrirlestrar:
„Human Rights Approach to the General Rules of Liability and Penalties in
Domestic and International Criminal Law“. Fluttur 22. apríl 1997 í boði félags-
ins „Gezelschap voor intemationaal strafrecht“ í Haag.
Rannsóknir:
Vann að síðustu þáttunum í nýrri bók, Afbrot og refsiábyrgð, sem væntanleg
er á prenti síðar á þessu ári. Hún er rituð sem ítarlegt rannsóknarframlag höf-
undar til almenna hluta refsiréttarins.
Vann að samningu yfirlitsrits á ensku um íslenskan refsirétt og opinbert rétt-
arfar. Refsiréttarhlutinn, sem er að mestu tilbúinn undir heitinu „A Brief Out-
line of Icelandic Criminal Law“, verður birtur í kynninganiti á ensku um
íslenskan rétt. Hann verður auk þess hluti af stærra verki er birtist erlendis.
Vann að rannsóknum og ritstörfum unr ýmis efni í alþjóðlegum refsirétti og
samanburðarrefsirétti, einkum í tengslum við námskeið fyrir erlenda stúdenta.
Páll Hreinsson
Ritstörf:
Hvaða ákvarðanir eru stjómvaldsákvarðanir? Rv. 1997, 52. bls. (Fjölrit).
Sýning tékka. Rv. 1997, 46 bls. (Fjölrit).
Fyrirlestrar:
„Eftirlit umboðsmanns Alþingis nreð stjórnsýslu sveitarfélaga - eftirlit með
gjaldtöku sveitarfélaga“. Fluttur 20. nóvember 1997 á fjármálastefnu Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
„Hafa EES-réttarreglur, sem teknar hafa verið upp í íslenskan landsrétt, ver-
ið birtar hér á landi í samræmi við kröfur 27. gr. stjórnarskrárinnar og ákvæði
136