Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 16

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 16
ingardrátturinn teljist verulegur þegar frestinum lýkur. Kaupandinn verður að sýna viðsemjanda sínum tillitssemi í þessu efni sem öðrum og má því ekki setja honum frest sem er svo stuttur að óraunhæfur sé eða ósanngjam.22 Fresturinn er viðbót við þann frest sem seljandi hefur upphaflega til afhendingar. Hann getur því almennt fyrst byrjað að líða frá og með afhendingardegi. Þó er ekki útilok- að, ef um fyrirsjáanlegar vanefndir er að ræða af hálfu seljanda, að kaupandi geti sett honum frest áður en umsaminn afhendingartími er kominn.23 Kaupandi verður að setja seljanda tilgreindan frest ella rís óvissa um hvenær riftunarréttur hans stofnast. Kaupandi verður einnig að gæta þess að senda tilkynningu til seljanda um viðbótarfrest með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í 16. gr. fkpl. ef hann vill vera viss um að hún öðlist réttaráhrif. I þessu felst ekki að gerðar séu formkröfur til tilkynningarinnar heldur að hún verði bezt sönnuð með þessum hætti. Efnislega verður tilkynningin einnig að vera skýr, þ.e. það verður að vera ljóst að kaupandi sé að setja seljanda slíkan frest. Það er á áhættu kaupanda ef hann tjáir sig ekki skýrlega um þetta. Á meðan viðbótarfrestur er að líða getur kaupandi ekki rift. Skiptir í því efni engu máli þótt afhendingardrátturinn teldist orðinn verulegur.24 Frá því eru tvær undantekningar. I fyrsta lagi getur hann rift innan uppgefins frests ef seljandi lýsir því yfir að hann rnuni ekki afhenda innan frestsins. I öðru lagi getur hann rift ef það er ljóst af öðrum ástæðum að seljandi muni ekki afhenda innan frests- ins. Gæti hér helzt verið um að ræða að ómöguleiki stæði afhendingu í vegi eða annars konar hindrun senr ljóst væri að seljandi gæti ekki bægt frá eða yfirunnið.25 Ef ágreiningur rís hefur kaupandi sönnunarbyrði fyrir því að selj- andi myndi ekki hafa getað afhent innan frestins vegna slíkra hindrana. Ef frest- ur er ekki þeim mun lengri er varasamt fyrir kaupanda að taka slíka áhættu, nema alveg sé ljóst að seljandi geti ekki efnt. 5.3 Skilyrðið um að rétt skil á greiðslum geti farið fram Þá er það skilyrði riftunar að fasteignin hafi ekki rýrnað, skemmzt eða farizt á meðan kaupandi bar áhættu af henni. Þetta skilyrði er í samræmi við megin- regluna um að hvor aðilja um sig verði að skila þeirri greiðslu sem hann hefur tekið við. Óljóst hefur verið hver staða þessarar reglu hefur verið í íslenzkunr rétti. Telja verður að draga megi þá ályktun af dómaframkvæmd að samnings- aðili geti lýst yfir riftun og aflað viðurkenningar dómstóla á réttmæti riftunar- innar, ef hann kýs, þótt hann hafi ekki boðið fram skil af sinni hálfu, eða jafnvel þótt aðstæður séu með þeim hætti að liann geti ekki skilað því til baka sem hann hefur fengið. Má um þetta vísa til tveggja dóma Hæstaréttar, þ.e.: 22 Kai Kriiger: Norsk kj0psrett, bls. 405. 23 Stein Rognlien: Avhendingslova, kommentar til loven om avhending (kjpp og salg) av fast eiendom, bls. 95. 24 Alþingistíðindi 2001-02, A-deild, bls. 1471. 25 Alþingistíðindi 2001-02, A-deild, bls. 1471. 124
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.