Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Qupperneq 17

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Qupperneq 17
H 1985 1516 H o.fl. seldu V nokkrum fasteign að Miðbraut 32, Seltjarnamesi, fyrir kr. 1.000.000 í marz 1982. Greiddi V kr. 100.000 en vanefndi síðari greiðslur. Hann gerði fljótlega makaskiptasamning við T, en samkvæmt þeim samningi skyldi hinn síðarnefndi fá fasteignina afhenta en láta V í staðinn fá íbúð í fjöleignarhúsi við Furugrund 70, Kópavogi, sem T hafði átt. Vegna vanefnda V riftu H o.fl. kaupsamningi í júlí 1982. Þau óskuðu í framhaldi af því útburðar en var hafnað og reyndu þá að innheimta kaupverðið hjá V. Þegar það tókst ekki voru knúin fram gjaldþrotaskipti á búi V og lýstu þau kröfu í þrotabúið um riftun samningsins. Réttmæti riftunarinnar var nrótmælt af hálfu þrotabúsins og einnig af hálfu T senr hafði verulegra hagsmuna að gæta. í máli, sem rekið var milli H o.fl. annars vegar og T og þrotabúsins hins vegar, var deilt um réttmæti riftunarinnar. Var af hálfu Hæstaréttar fallizt á að riftun hafi verið réttmæt. I forsendum dóms Hæstaréttar (meiri hluta) sagði m.a. að það stæði eftir íslenzkum rétti því ekki í vegi að riftun væri „heimiluð af dómstólum“ þótt rétt kynni að vera að H o.fl. hefðu til þessa gert ófullnægjandi boð um skil af sinni hálfu. H 1987 338 Mál þetta varðar lausafjárkaup, þ.e. kaup K á heildverzlun af J. Hluti hins selda var vörulager og réttur til innflutnings og dreifingar á snyrtivörum undir þekktu vöru- merki. Kaupverðið var greitt af hálfu J með afhendingu 70 skuldabréfa sem hvert um sig var að fjárhæð kr. 50.000. K taldi að J hefði vanefnt kaupsamninginn verulega með því að réttur til innflutnings og dreifingar á snyrtivörunum gat ekki fylgt, auk þess sem vörulagerinn hafi verið mun torseljanlegri en upp var gefið við kaupin. K lýsti yfir riftun á kaupunum, en því var andmælt af hálfu J. I dómi Hæstaréttar í málinu var á það fallizt að heimilt hefði verið af hálfu K að rifta kaupunum. I forsendum dómsins kemur fram að K hafði selt hluta af þeim vörum sem hún hafði fengið afhentar og þess vegna gæti hún ekki skilað aftur öllu því sem hún hefði fengið afhent frá J, en ekki kom fram hve mikill hluti það var. Þá segir einnig að J hafi selt skuldabréf þau sem hún fékk frá K til greiðslu kaupverðsins. Þessi atriði þóttu þó ekki standa því í vegi að „viðurkenningardómur gangi um heimild [K] til riftunar, ef skilyrði hennar verða talin vera til staðar að öðru leyti“. Á hinn bóginn má vísa til: H 1969 241 í því máli voru atvik á þann veg að bátur var seldur í september 1964 ásamt nokkurri veiðarfæraútgerð fyrir kr. 1.100.000. Báturinn hafði haffærisskírteini til ársloka framangreinds árs, en skoðun hafði farið fram í júní það ár. í janúar 1965 var báturinn tekinn í slipp og taldi þá kaupandi sig sjá maðk í ytri súð bátsins. Við skoðun síðar kom í ljós að ytri súðin var orðin maðksmogin og ýmsir aðrir hlutar bátsins skemmdir af fúa. Taldi kaupandi að báturinn væri ónothæfur og lýsti í febrúar 1965 yfir riftun. Seljandi andmælti því að forsendur riftunar væru fyrir hendi. í forsendum dóms Hæstaréttar segir að ekki liggi fyrir viðhlítandi gögn um það hvort kaupandi hafi þá verið fær um að skila því sem hann keypti svo á sig komnu sem það var er hann uppgötvaði gallana. Ef hann væri ekki fær um að skila því sem hann keypti í framangreindu ástandi þyrfti að liggja fyrir hver rýmunin væri á meðan þessir munir voru í vörzlum hans, sbr. 57. og 58. gr. laga nr. 39/1922. Skorti matsgerð um þetta 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.